Skjálfti er í blússandi gangi um helgina í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi. Mótið stendur yfir fram á morgun sunnudag þegar úrslitaleikir í League of Legends og Counter-Strike 2 fara fram, og verða verðlaunaafhendingar í beinu framhaldi með pompi og prakt.
Lokahnykkurinn í undirbúningi fyrir stærsta LAN-viðburð ársins
Íþróttahúsið í Digranesi tekur á sig nýtt hlutverk sem heimkynni Skjálfta. Myndir úr undirbúningnum í vikunni sýna hvernig skipulagið mótast smám saman.
Myndaveisla
Með fylgja myndir frá föstudeginum sem fanga andrúmsloftið á mótsstað og sýna gleðina meðal keppenda og áhorfenda.
Fjölbreytt dagskrá og nýir tímar
Dagskráin á Skjálfta er stútfull. Auk tölvuleikjanna sem mörgum tengjast sterkum minningum frá hápunkti Skjálftamótanna fyrir tuttugu árum, Counter-Strike og Quake, eru nú nýrri leikir orðnir fastir liðir. Þar má nefna League of Legends, Super Smash Bros, Apex Legends og Fortnite sem draga að sér nýja kynslóð keppenda.
Sérstök atriði eru einnig á dagskránni. Í dag kl. 14:00 stígur Steindi Jr. á svið ásamt félögum sínum í hópnum Rauðvín og klakar og spilar fyrir áhorfendur. Einnig fara fram sýndarviðureignir í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike og LOL sem bjóða upp á spennandi glugga inn í keppnisheim íslenskra rafíþrótta.
Pressi mættur með Þór
Mbl.is tók skemmtilegt viðtal við Viktor Orra Gíslason, betur þekktan sem Pressa, sem keppir á Skjálfta með liðinu Þór í Counter-Strike. Hann er meðal þeirra sem halda mótsstemningunni lifandi með frammistöðu sinni á sviðinu. Lesa má viðtalið í heild sinni á mbl.is.
Frítt inn, stemming í boði allra
Frítt er inn fyrir gesti sem vilja kíkja á mótið, sjá leiki í beinni og njóta stemningarinnar á staðnum. Hægt er að kynna sér dagskrána í heild sinni með því að smella hér.
„Fram úr okkar björtustu vonum“
„Skjálfti hefur gengið fram úr okkar björtustu vonum,“
segir Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, í samtali við esports.is. Hann bætir við að þátttaka, skipulag og stemning á mótinu hafi sannað að Skjálfti eigi enn sérstakan stað í hjarta íslensks rafíþróttasamfélags.
Saga Skjálfta
Skjálfti á sér langa og litríka sögu. Hann hófst innan vébanda Símans Internet (áður Landssíminn) haustið 1998 þegar leikjaþjónninn skjalfti.simnet.is fór í loftið þann 9. október. Á árunum 2003–2005 náði Skjálfti hápunkti hvað umfang og vinsældir varðar. Þá voru mótin haldin að jafnaði fjórum sinnum á ári, yfirleitt í febrúar, vori, sumri og hausti, og hvert þeirra laðaði að sér hundruð keppenda og áhorfenda. Nánar um Skjálfta hér.
Myndir: Rafíþróttasamband Íslands / Atli Már






















