Close Menu
    Nýjar fréttir

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    1 2 3 … 354 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Skólasamstarf opnar dyr að rafíþróttum
    Skólasamstarf þróast í rafíþróttaviðureign
    Samsett mynd: mtr.is / rocketleague.com
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Skólasamstarf opnar dyr að rafíþróttum

    Chef-Jack25.02.2026Uppfært25.02.20262 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Skólasamstarf þróast í rafíþróttaviðureign

    Um árabil hefur Menntaskólinn á Tröllaskaga átt í farsælu og metnaðarfullu samstarfi við skólann New College Lanarkshire í Skotlandi. Samstarfið á rætur sínar að rekja til Ecomedia Evrópuráðstefnu í Rúmeníu árið 2016, þar sem kastljósinu var beint að upplýsingatækni í skólastarfi og nýsköpun í kennsluháttum.

    Skólasamstarf þróast í rafíþróttaviðureign

    Í kjölfarið sóttu kennarar MTR ráðstefnu til kollega sinna í Skotlandi og síðar komu fulltrúar NCL til Íslands þegar sambærileg Evrópuráðstefna var haldin hjá MTR. Tengslin hafa því styrkst jafnt og þétt á vettvangi kennara og stjórnenda. Þegar aðstoðarskólameistara MTR og einum kennara var boðið að sækja ráðstefnu hjá NCL á síðasta ári kviknuðu nýjar hugmyndir um að færa samstarfið yfir á nýtt stig og virkja nemendur með markvissari hætti.

    Skólasamstarf þróast í rafíþróttaviðureign

    Rafíþróttir brúa bilið milli landa

    Fyrstu drög að slíku nemendasamstarfi litu dagsins ljós á dögunum þegar rafíþróttalið MTR var skorað á hólm af tveimur liðum frá NCL í leiknum Rocket League. Úr urðu tvær líflegar og skemmtilegar viðureignir þar sem ekki var til sparað. Leikirnir voru streymdir innan skoska skólans með kynnum og umgjörð sem minnti um margt á hefðbundna keppnisútsendingu.

    Skólasamstarf þróast í rafíþróttaviðureign

    Lið MTR hafði betur í báðum viðureignum, en úrslitin voru þó ekki aðalatriðið. Mikilvægast var að nemendur kynntust, mynduðu tengsl og fengu tækifæri til að takast á við jafningja sína erlendis í skipulögðu og jákvæðu umhverfi rafíþrótta. Markmiðinu var því náð, að efla samskipti og samvinnu þvert á landamæri með stafrænum lausnum.

    Skólasamstarf þróast í rafíþróttaviðureign

    Frekara samstarf er þegar í farvatninu og verður áhugavert að fylgjast með hvernig þessi vinabönd skólanna þróast á næstu misserum. Með rafíþróttum sem sameiginlegan vettvang virðist ljóst að fjarlægðir skipta sífellt minna máli þegar kemur að alþjóðlegu skólasamstarfi.

    Myndir: mtr.is

    Íslenskt efni Menntaskólinn á Tröllaskaga
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    Við mælum með

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026

    Ný rafíþróttaaðstaða á Húsavík

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.