Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»PC leikir»Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers
    Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers
    PC leikir

    Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers

    Chef-Jack26.11.20222 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers

    Solid Clouds býður hluthafa sína velkomna á fjárfestadag fimmtudaginn 1. desember næstkomandi kl. 17.00 í höfuðstöðvum félagsins.  Þeir munu fá kynningu á nýjasta leik félagsins, Starborne Frontiers, og næstu skref varðandi útgáfu leiksins á fyrra hluta næsta árs.

    DAGSKRÁ
    17:00 Gestir mæta
    17:20 Móttökuávarp – stjórnarformaður
    17:30 Leikurinn sýndur – tæknistjóri
    17:40 Næstu skref – forstjóri
    17:50 Léttar veitingar
    19:00 Viðburðarlok

    Skrifstofa Solid Cloud er staðsett á Eiðistorgi 17, annarri hæð, 170 Seltjarnarnesi

    Takmarkað pláss er svo vinsamlegast smelltu hér til að skrá þig.

    „Það hefur verið virkilega gaman að sjá nýjasta leikinn okkar, Starborne Frontiers, taka á sig mynd síðustu mánuði. Teymið hefur lagt sig fram við að framleiða hágæða tölvuleik sem mun án vafa vekja athygli. Næsti áfangi í þróun leiksins er að taka á móti fleiri spilurum og fá viðbrögð þeirra til að gera leikinn vinsælan,“

    Stefán Gunnarsson, forstjóri Solid Clouds.

    Um Starborne Frontiers

    Nýjasti leikur Solid Clouds, Starborne Frontiers, er hannaður fyrir farsíma en einnig er hægt að spila hann á borðtölvu (e. PC). Um er að ræða hlutverkaleik þar sem spilarinn setur sig í hlutverk flotaforingja sem safnar og uppfærir flota til að kanna, skipuleggja og sigra Starborne alheiminn sem er fullur af spennu og bardögum.

    Fylgjast má með fréttum um leikinn á Starborne vefsetrinu, en þegar hafa verið birtar nokkrar fréttir um söguheiminn.

    Hér má sjá myndskeið um leikinn:

    Um Solid Clouds

    Solid Clouds var stofnað í Reykjavík árið 2013 af Stefáni Gunnarssyni, Stefáni Björnssyni og Sigurði Arnljótssyni og er það fyrsta tölvuleikjafyrirtæki Íslands sem skráð er á markað. Það eru 24 sem vinna að gerð leiksins hjá Solid Clouds og er þróunarteymið leitt af reynsluboltum úr leikjaiðnaði eins og Ágústi Kristinssyni listrænum stjórnanda, Agli Sigurjónssyni framleiðanda, Þorgeiri Auðunn Karlssyni tæknistjóra og Stefáni Friðrikssyni aðalhönnuði.

    Frekari upplýsingar um Solid Clouds, má nálgast á vefslóðinni www.solidclouds.com eða með skráningu á póstlista félagsins.

    Mynd: solidclouds.com

    Solid Clouds Starborne Frontiers
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Star Wars Battlefront II í sögulegu lágmarki á Steam

    22.06.2025

    Þessir skotleikir verða algjör sprengja! Heitustu leikirnir 2025

    03.02.2025

    PC leikmenn fá loks að upplifa The Last of Us Part II í endurútgáfunni – Vídeó

    02.02.2025

    Nýr þáttur hjá Leikjavarpinu – Leikir væntanlegir 2025, GTA IV, Doom: The Dark Ages ásamt fjölda annarra leikja

    31.01.2025
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.