
Mynd: úr einkasafni
Tveir íslenskir rafiðnfræðingar standa að verkefninu spicy.is, þar sem boðið er upp á leikjahýsingu fyrir íslenska spilara án endurgjalds.
Á bak við verkefnið standa æskuvinirnir Orri og Hilmar, sem hafa lengi starfað saman bæði í leikjasamfélögum og í tæknigeiranum.
Æskuvinir með langa reynslu úr Minecraft-samfélaginu
Orri og Hilmar kynntust snemma í gegnum sameiginlegan áhuga á tölvuleikjum og hafa spilað saman Minecraft frá árinu 2008. Með árunum urðu þeir einnig virkir þátttakendur í íslenska Minecraft-samfélaginu og tóku þátt í rekstri vinsælla leikjaþjóna.
Þeir komu meðal annars að rekstri serversins Sandkassinn, sem starfaði undir lénunum Minecraft.is og Gussi.is. Á sínum tíma var þar töluverð umferð spilara og að sögn Orra og Hilmars gátu allt að 80 manns verið að spila á sama tíma yfir daginn.
Þegar sá server var lagður niður keyptu þeir lénið Sandkassinn.is og reyndu í kjölfarið að halda þeirri stemningu á lífi með nýjum server í nokkur ár.
„Við höfum því fengið ágæta innsýn í samfélagsuppbyggingu í kringum Minecraft,“
segja þeir í samtali við esports.is.
Skýr verkaskipting í verkefninu
Í rekstri spicy.is skiptist hlutverk þeirra nokkuð skýrt.
Hilmar sér að mestu um tæknilega innviði verkefnisins, svo sem uppsetningu og viðhald á kerfum sem þjónustan byggir á. Orri leggur hins vegar meiri áherslu á framendann, hugmyndavinnu og að þróa þjónustuna áfram.
„Hilmar sér um bakendann en ég reyni að koma Spicy á framfæri og hrinda hugmyndum í framkvæmd,“
segir Orri.
Hugmyndin kviknaði út frá eigin leikjaþjónum
Hugmyndin að spicy.is varð til þegar þeir voru sjálfir að setja upp leikjaþjóna til eigin nota. Fljótlega kviknaði sú hugsun að skemmtilegt gæti verið að endurvekja eitthvað af þeirri samfélagsstemningu sem ríkti á íslenskum Minecraft-serverum áður fyrr.
Upphaflega leigðu þeir sýndarþjóna erlendis, en þegar fleiri leikmenn bættust við kom í ljós að slík lausn hentaði Minecraft ekki sérstaklega vel.
„Þegar komnir voru yfir tíu spilarar sáum við fljótt að það virkaði ekki vel að deila hægvirkum örgjörva með öðrum,“
segir Hilmar.
Þeir færðu sig því yfir á öflugri vélbúnað í gagnaveri í Þýskalandi. Þegar tengingar frá Íslandi versnuðu og ping hækkaði töluvert tóku þeir hins vegar ákvörðun um að færa reksturinn heim til Íslands.
Byggðu eigin vél fyrir íslenska leikjahýsingu

Mynd úr safni: pixabay.com
Til að leysa málið keyptu þeir íhluti sem þeir fundu til sölu á spjallborðinu Vaktinni og settu saman eigin leikjaþjón.
Sú vél hefur verið hjartað í rekstri spicy.is frá árinu 2022. Hún byggir meðal annars á Ryzen 7 3700X örgjörva og 128 GB vinnsluminni.
Nýlega keyptu þeir enn öflugri vél sem mun taka við hlutverkinu á næstunni. Hún er búin Threadripper 3990X örgjörva og 256 GB vinnsluminni.
„Þar höfum við 64 kjarna og 128 þræði til að deila með íslenskum tölvuleikjaunnendum ef áhugi er fyrir hendi,“
segja þeir.
Rekstur byggir að mestu á framlögum
Þrátt fyrir að notendur greiði ekkert fyrir þjónustuna er ekki alveg kostnaðarlaust að halda slíkri hýsingu gangandi.
Að sögn þeirra tveggja er spicy.is fyrst og fremst fjármagnað með eigin vinnu og fjármagni.
„Spicy.is er að mestu fjármagnaður af blóði, svita og tárum okkar tveggja.“
Þeir njóta þó einnig stuðnings frá notendum í gegnum Patreon-síðu verkefnisins, sem hjálpar til við að standa straum af viðhaldskostnaði og smávægilegum hugbúnaðarkaupum.

Einfaldara ferli fyrir nýja stjórnendur
Markmiðið með spicy.is er að gera leikjahýsingu aðgengilegri fyrir fólk sem hefur kannski ekki mikla tæknilega reynslu.
Þegar umsókn berst fara þeir yfir hana og bjóða umsækjandanum í stutt spjall á Discord-rás verkefnisins. Að því loknu fær viðkomandi aðgang að stjórnborði þar sem hægt er að stýra leikjaþjóninum.
Þar má meðal annars nálgast stjórnborð serversins, stillingar, skráakerfi og FTP-aðgang.
Þeir leggja þó áherslu á ákveðnar meginreglur. Þjónarnir eiga að vera opnir almenningi og allir leikmenn eiga að sitja við sama borð.
„Það er mikilvægt að allir fái sömu tækifæri og að enginn fái forskot vegna tengsla við stjórnendur,“
segir Hilmar.
Minecraft, ARK og Vintage Story

Fyrsti leikurinn sem var hýstur á spicy.is var að sjálfsögðu Minecraft. Síðar bættist við server fyrir ARK: Survival sem var virkur í tæpt ár.
Nýjasti leikurinn í þjónustunni er Vintage Story, sem hefur notið vaxandi vinsælda meðal ákveðinna hópa spilara.
Orri og Hilmar segja að möguleikarnir séu mun fleiri ef áhugasamir stjórnendur gefi sig fram:
„Við getum bætt við fleiri leikjum svo lengi sem við finnum áhugasaman ‘overlord’ sem getur séð um viðkomandi leikjaþjón.“

Mynd: vintagestory.at
Hæg byrjun en miklir möguleikar
Viðtökur hafa hingað til verið fremur rólegar, sem þeir telja að skýrist að hluta til af því að lítið hefur verið lagt í auglýsingar.
Þeir eru þó bjartsýnir á framhaldið og telja að verkefnið geti orðið vettvangur fyrir nýtt íslenskt leikjasamfélag.
Markmiðið er einfalt. Að bjóða upp á stöðuga, íslenska leikjahýsingu þar sem spilurum stendur til boða að byggja upp samfélag líkt og á fyrstu árum Minecraft-servera á Íslandi.
Ef þú hefur alltaf langað í eigin leikjaþjón en veist ekki hvar á að byrja, þá gæti spicy.is verið rétti staðurinn. Þar eru tölvunördar sem kunna þetta allt saman.




