
Leikjaframleiðandinn Sucker Punch Productions, þekktur fyrir Ghost of Tsushima og væntanlegan framhaldsleik Ghost of Yotei, hefur ratað í sviðsljósið eftir að listakonan Drew Harrison var látin fara úr starfi. Harrison hafði starfað hjá stúdíóinu í nærri áratug en var rekin eftir að hafa birt færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún gerði gys að morði íhaldsmannsins Charlie Kirk.
Sony staðfesti uppsögnina innan sólarhrings og lýsti henni sem nauðsynlegri aðgerð til að undirstrika afstöðu fyrirtækisins gegn því að gera létt grín að dauða eða ofbeldi. Brian Fleming, stofnandi og framkvæmdastjóri Sucker Punch, tók í sama streng í viðtali við Game File:
NEW: I spoke to Sucker Punch’s Brian Fleming about the Ghost of Yotei studio’s quarter-century PlayStation relationship, their smaller-dev-team strategy, more
“In order to do something great, you need a really incredible idea and not quite enough time”https://t.co/wIYl1LPps3
— Stephen Totilo (@stephentotilo) September 19, 2025
Á netinu hefur þrýstingur frá hægri sinnuðum hópum vaxið, þar sem krafist er þess að fleiri starfsmenn sem hafi „líkað við“ eða deilt færslunni verði látnir sæta afleiðingum. Svipaðar ásakanir hafa einnig beinst að öðrum fyrirtækjum í leikjaiðnaðinum, þar á meðal Bethesda og Microsoft, sem hafa þurft að bregðast við með eigin yfirlýsingum.
We’re aware of the views expressed by a small subset of our employees regarding recent events. We take matters like this very seriously and we are currently reviewing each individual situation. Comments celebrating violence against anyone are unacceptable and do not align with…
— Microsoft (@Microsoft) September 12, 2025
Harrison sjálf hefur þó ekki lýst óvild í garð fyrrverandi vinnuveitanda síns. Í nýlegri færslu sagði hún:
„Sucker Punch er stórkostlegt stúdíó og eitt af síðustu björtu ljósum í leikjaiðnaðinum. Ég styð þau enn og vil ekki að óvild beinist að þeim.“
Sucker Punch is amazing & one of the last few bright shining lights in the game industry. I still support them and I cannot condone any animosity directed at them. It’s truly all the best people.
— drew punching Nazis till I die (@imodrew.bsky.social) September 14, 2025 at 9:40 AM
Á meðan deilurnar dynja á heldur undirbúningur áfram fyrir útgáfu Ghost of Yotei, sem kemur út á PlayStation 5 í byrjun næsta mánaðar.



