Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Svarthol Microsoft gleypir framtíð leikjanna – Samfélagsmiðlar loga af reiði
    Svarthol
    Tölvuleikir

    Svarthol Microsoft gleypir framtíð leikjanna – Samfélagsmiðlar loga af reiði

    Chef-Jack05.07.2025Uppfært04.01.20264 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Svarthol

    Leikjaiðnaðurinn dregur andann djúpt eftir að Microsoft tilkynnti nýja bylgju uppsagna, sem nú þegar hefur leitt til lokunar stúdíóa, niðurfellingar stórra leikjaverkefna og gríðarlegrar óvissu um framtíð margra þróunarteyma.

    Microsoft hefur ráðist í enn eina umfangsmikla fækkun starfsfólks. Um er að ræða þúsundir uppsagna, þar af fjölda starfsmanna sem störfuðu innan Xbox deildarinnar og hinna ýmsu leikjaframleiðslueininga fyrirtækisins. Samkvæmt opinberum tölum hefur tæplega helmingur hinna nýjustu uppsagna bitnað beint á leikjaþróunarfólki.

    Leikir felldir niður og stúdíó lokað

    Meðal þeirra verkefna sem hafa orðið undir er endurvakningin á hinum margfræga hasarleik Perfect Dark, sem þróaður var af stúdíóinu The Initiative. Því hefur nú verið lokað, og þróun leiksins stöðvuð.
    Sömuleiðis hefur verkefnið Everwild, ævintýraleikur frá breska stúdíóinu Rare, verið blásið af eftir margra ára þróun.

    ZeniMax Online Studios hefur einnig orðið fyrir miklum skakkaföllum, en þar hefur þróun nýs fjölspilunarleiks – sem bar vinnuheitið Project Blackbird, verið stöðvuð, þrátt fyrir að hafa notið innri stuðnings og áhuga háttsettra stjórnenda Xbox. Sagt er að Phil Spencer, yfirmaður Xbox, hafi haft það mikla ánægju af prufuútgáfu leiksins að hann hafi þurft að vera stöðvaður í spilun til að sinna öðrum verkefnum.

    Að auki hefur verulega verið skorið niður hjá Turn 10 Studios, sem stendur að baki vinsælu Forza Motorsport leikjunum. Þar missti um helmingur starfsfólksins störf, sem hefur vakið mikla athygli í greininni.

    Reiði og vonleysi í röðum leikjafólks

    Viðbrögð úr leikjaiðnaðinum hafa verið hörð og tilfinningaþrungin. Michael Douse, framkvæmdastjóri útgáfumála hjá Larian Studios (Baldur’s Gate 3), lýsti ástandinu með eftirminnilegum orðum:

    „Þetta er eins og risastórt svarthol sem gleypir allt – og spýtir út beinagrindum.“

    Hann bætti við að framtíð greinarinnar væri sífellt óljósari:

    „Á hverjum einasta degi er erfiðara að sjá hvert þessi iðnaður stefnir.“

    Just a giant black hole sucking everything in, and spitting out bones. While I’m excited for more games, it’s important to remember that behind all the PR and hype is the simple truth that they bought portfolios, not people. When you’re bought, they’re not buying *you*.… https://t.co/toNkZtK3ax

    — Very AFK (@Cromwelp) July 2, 2025

    Fleiri hafa tekið undir þessi orð og lýst áhyggjum af því hvernig stórfyrirtæki, sem í orði kveðnu styðja nýsköpun og listrænt frelsi, sýni í verki að þau eru fyrst og fremst rekin af skammtímahagsmunum og fjárhagslegum hagsmunavörslu hluthafa.

    „Xbox er að deyja og Sony virðist fylgja Microsoft í gröfina.
    Nintendo á varla lengur raunverulega samkeppni – þeir þurfa ekki einu sinni að innovate-a til að halda sér á floti.
    Tímarnir hafa breyst. PC-leikjaspilun er framtíðin.“

    Skrifar einn íslenskur tölvuleikjaspilari með augljósar áhyggjur af þróun mála í leikjaiðnaðinum.

    Reyndi hreyfimyndasmiðurinn Robert Morrison, sem starfað hefur við leiki á borð við The Last of Us og God of War, skrifar:

    „Gamalt og rótgróið vandamál í leikjaiðnaðinum er að of margir í stjórnunarstöðum hafa fengið að mistakast – og samt komist áfram.

    Fólk sem tekur slæmar ákvarðanir byggðar á vondum hugmyndum, sem leiða til þess að verkefni eru felld niður, sölutölur daprar og stúdíó loka.

    Þeir kunna að tala fyrir sig og eiga auðvelt með að eignast vini – en eru ekki góðir í að búa til frábæra leiki.

    Þeir halda vinnunni, fá jafnvel stöðuhækkun, og allir aðrir bera kostnaðinn.“

    Patrick Wren, fyrrverandi starfsmaður Halo og einn af reyndustu þróunaraðilum Respawn, segir:

    „Í dag bætist enn eitt hneykslið í leikjaiðnaðinn. Á hverjum degi verður erfiðara að sjá hvert þessi iðnaður stefnir.“

    Today is just another travesty in the game industry.

    Every day it’s hard to see what the future of this industry is.

    — Patrick Wren (@Witdarkstar) July 2, 2025

    Uppsagnir í skugga yfirtaka

    Uppsagnirnar koma í kjölfar umfangsmikilla yfirtaka Microsoft á undanförnum árum, þar á meðal kaupum á ZeniMax Media og Activision Blizzard, þar sem milljarðar dollara hafa runnið til eignarhalds í helstu stúdíóum iðnaðarins.

    Þrátt fyrir yfirlýsingar um að framtíðaráform fyrirtækisins á sviði vélbúnaðar og leikjaframleiðslu hafi aldrei litið betur út, þá líta margir þetta sem merki um öfugan veruleika, þar sem metnaðarfull verkefni eru skorin niður áður en þau fá raunverulega tækifæri til að njóta sín.

    Óvissa og ótti ríkir

    Þessi atburðarás hefur dregið fram kvíða og vonleysi í röðum leikjafólks víðsvegar um heiminn. Með hverri nýrri uppsagnarbylgju virðist skapandi umhverfi þróunarstúdía verða brothættara, og spurningin brennur á vörum margra: Hverju er fórnað, og fyrir hvað?

    Activision Blizzard Everwild Forza Motorsport Microsoft Phil Spencer Project Blackbird Rare The Initiative Turn 10 Studios Xbox ZeniMax Online Studio
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.