The Game Awards heldur áfram að styrkja stöðu sína sem stærsti árlegi viðburður tölvuleikjaiðnaðarins. Samkvæmt nýjum tölum horfðu um 171 milljón manns á verðlaunahátíðina í beinni útsendingu fyrr í þessum mánuði, sem er umtalsverð aukning frá síðasta ári.
Þetta jafngildir um 17 milljóna áhorfa fjölgun frá árinu 2024 og nemur hækkunin um 11 prósent. Í umfjöllun Variety kemur fram að tölurnar taki þó ekki til áhorfs í gegnum Amazon Prime Video, sem bauð upp á útsendingu frá hátíðinni í fyrsta sinn í ár. Mældar áhorfstölur ná meðal annars til YouTube, Twitch, TikTok, Facebook og Instagram Live, auk svæðisbundinna streymisþjónusta í Kína og Indlandi.
Gögn frá Streamcharts sýna að áhorf á vestrænum streymisveitum jókst um 9 prósent milli ára og náði hámarki þegar samtímis voru 4,4 milljónir áhorfenda í beinni. Þetta met endurspeglast einnig í mikilli aukningu áhorfs á bæði YouTube og Twitch miðað við fyrra ár.
Hér má horfa á The Game Awards í heild sinni:
Samstreymi gegndi einnig lykilhlutverki í ár, en alls tóku um 16.500 streymarar á Twitch þátt í að fylgjast með viðburðinum ásamt áhorfendum sínum. Það er um 50 prósenta aukning frá síðasta ári og undirstrikar enn frekar stöðu The Game Awards sem fastan punkt í árlegu dagskrá leikjaiðnaðarins.
Til samanburðar voru áhorfendur Óskarsverðlaunanna aðeins um 19,7 milljónir í ár. Þrátt fyrir að Óskarinn njóti áfram mikils menningarlegs vægis blasir við að The Game Awards hefur yfirburði þegar kemur að hreinum áhorfstölum, að minnsta kosti á stafrænum vettvangi. Óskarsverðlaunin eru enn bundin hefðbundinni sjónvarpsútsendingu í gegnum ABC, en stefnt er að flutningi yfir á YouTube þegar samningurinn rennur út árið 2029.
En hvers vegna heldur áhorf The Game Awards áfram að vaxa ár frá ári? Þar vega þungt kynningar á nýjum leikjum og stiklum sem laða að sér athygli langt út fyrir hóp þeirra sem fylgjast með verðlaununum sjálfum. Þá verða úrslit og verðlaun jafnan tilefni umfangsmikillar umræðu, líkt og þegar franski hlutverkaleikurinn Expedition 33 sópaði að sér níu verðlaunum á hátíðinni í Peacock Theatre og varð eitt helsta umræðuefni kvöldsins.
Mynd: facebook / The Game Awards




