Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Þú átt eftir að deyja mikið í Battlefield 6: Sjáðu myndbandið
    Tölvuleikir

    Þú átt eftir að deyja mikið í Battlefield 6: Sjáðu myndbandið

    Chef-Jack25.07.2025Uppfært02.08.20252 mín lestur
    Facebook Twitter Pinterest LinkedIn Tumblr Email
    Battlefield 6
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Battlefield 6

    Það er allt að fara í gang í Battlefield 6, nýjasta leiknum í stórleikjaröð DICE og EA. Trailerinn sem féll á netið í júlí gefur tóninn: nýr stríðsher, Pax Armata, hefur tekið völdin yfir hluta heimsins og öll jafnvægi eru farin út um gluggann. Nú rísa löndin gegn hvert öðru í átökum sem teygja sig frá miðri Evrópu til stranda Gíbraltar og þú ert mitt í þessu öllu saman.

    Það er ljóst að markaðssetning Battlefield 6 er tekin á næsta level og það sést vel á stöðugum „drops“ og vísbendingum á samfélagsmiðlum. Þú ert sendur inn í lönd eins og Belgíu og Georgíu, þar sem Pax Armata er í óða önn að taka yfir. Þeir eru þungvopnaðir, skipulagðir og með markmið sem snúast ekki bara um völd heldur algera stjórn. Þeir kalla þetta „frið“, en við hin vitum betur.

    DICE virðist leggja meiri áherslu á söguhlutann í þetta sinn, sem margir aðdáendur hafa beðið lengi eftir. Það er ljóst að herferðin í Battlefield 6 verður eitthvað sem spilarar tala um og ef marka má fyrstu myndirnar, þá verður þetta ekki bara byssubardagi heldur líka alvarlegt spurningarmerki um framtíð heimsins.

    Í tilkynningu frá Electronic Arts er farið yfir sögusviðið og hvernig þessi Pax Armata-hugmynd virkar innan stærri ramma átaka og heimsstjórnmála. Þar kemur meðal annars fram að Gíbraltar verði ein af stærstu og þyngstu vígstöðvunum í herferðinni, eitthvað sem lofar miklu fyrir harða Battlefield-aðdáendur.

    Leikurinn sjálfur kemur út þann 10. október 2025, samkvæmt upplýsingum af vefsíðum EA. Og nei, leikurinn verður ekki aðgengilegur fyrir eldri vélar. Battlefield 6 kemur eingöngu á PC, PlayStation 5 og Xbox Series X|S, svo ef þú ert enn á PS4 eða gamla Xbox, þá er kominn tími til að uppfæra.

    Ef þú ert að bíða eftir fréttum um fjölspilunarhlutann, þá hefur EA lofað stórri kynningu þann 31. júlí. Þar fáum við að sjá hvernig allt fer á hliðina, þ.e. þetta klassíska Battlefield brjálæði sem við elskum. Við höldum niðri í okkur andanum þar til þá.

    Mynd: ea.com

    battlefield Battlefield 6 DICE Electronic Arts - EA Incoming PC leikur PlayStation Xbox
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.