Close Menu
    Nýjar fréttir

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    1 2 3 … 354 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»„Þú getur varla sleppt podracing“, segir Matt Webster og róar Star Wars aðdáendur
    Star Wars: Galactic Racer
    Tölvuleikir

    „Þú getur varla sleppt podracing“, segir Matt Webster og róar Star Wars aðdáendur

    Chef-Jack07.02.20262 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Star Wars: Galactic Racer

    Podracing-aðdáendur geta nú andað léttar. Þótt stikla Star Wars: Galactic Racer hafi vakið mikla lukku fyrir hraða og þessa klassísku setningu „þetta lítur ógeðslega vel út“, þá var eitt sem vantaði. Engir podracerar. Fyrir marga jafngilti það nánast Jedi-svikum, enda er podracing eitt það helgasta sem kom út úr Star Wars: Episode I: The Phantom Menace sem er hluti af minningu Star Wars-nörda.

    Leikurinn var kynntur í fyrra á The Game Awards og er í þróun hjá Fuse Games, nýju stúdíói skipuðu fyrrverandi Burnout-hönnuðum. Í stiklunni mátti glögglega greina Sebulba rétt í lokin, sem kveikti strax vangaveltur. Var hann aðeins skraut eða vísbending um eitthvað meira. Nú liggur svarið fyrir og það er jafn skýrt og tvöfaldur hreyfill á Tatooine.

    Star Wars: Galactic Racer

    Í viðtali við GamesRadar staðfesti forstjóri og meðstofnandi Fuse Games, Matt Webster, að podracing verði sannarlega hluti af leiknum.

    „Þú getur varla búið til Star Wars-kappakstursleik án þess að hafa podracing, er það nokkuð,“

    sagði Matt Webster. Hann bætti við að basic draumur leiksins væri að leyfa spilurum að stíga í spor úrvalsökumanna í Galactic League, þar sem podracing skipar algjöran toppsess þegar kemur að hraða og adrenalíni í Star Wars-heiminum.

    Matt Webster útskýrði jafnframt að markmið Fuse Games hefði verið að ganga lengra en bara eina tegund farartækja. Í Galactic Racer verði lögð áhersla á fjölbreyttan flota, ólíka upplifun af hraða og mismunandi leiðir til að takast á við keppni, bæði í solo og fjölspilun. Spilarar muni fá að aka farartækjum sem þeir þekkja og elska, ásamt nýjum sem þeir hafa aldrei kynnst áður.

    Til að fullkomna pakkann verður leikurinn einnig spilanlegur í fyrstu persónu, sem fyrir marga er eina rétta leiðin til að upplifa podracing á fullum hraða. Nú vantar í raun aðeins eina staðfestingu í viðbót, hvort hið goðsagnakennda Boonta Eve Classic úr Star Wars Racer’s Revenge verði í boði. Ef það smellur líka, þá verða fáir wookiear ósáttir þegar Star Wars: Galactic Racer kemur út á leikjatölvur og PC síðar á árinu.

    Myndir: Steam / STAR WARS: Galactic Racer

    Burnout Fuse Games Incoming Matt Webster PC leikur PlayStation Star Wars Star Wars: Galactic Racer The Game Awards Xbox
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Xbox boðar nýja stefnu eftir erfiðan niðurskurð

    31.07.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026
    Við mælum með

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026

    Ný rafíþróttaaðstaða á Húsavík

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.