Close Menu
    Nýjar fréttir

    PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí

    14.07.2026

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026
    1 2 3 … 352 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Tölvuleikjaspjallið kynnir: Þrjár stærstu fréttir mánaðarins í leikjaheiminum – Hlaðvarp
    Tölvuleikjaspjallið kynnir: Þrjár stærstu fréttir mánaðarins í leikjaheiminum
    Þetta er í fyrsta sinn sem danska stúdíóið, sem er þekktast fyrir Hitman seríuna, fær að vinna með 007 vörumerkið. Mynd: ioi.dk
    Tölvuleikir

    Tölvuleikjaspjallið kynnir: Þrjár stærstu fréttir mánaðarins í leikjaheiminum – Hlaðvarp

    Chef-Jack04.06.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Tölvuleikjaspjallið kynnir: Þrjár stærstu fréttir mánaðarins í leikjaheiminum
    Þetta er í fyrsta sinn sem danska stúdíóið, sem er þekktast fyrir Hitman seríuna, fær að vinna með 007 vörumerkið.
    Mynd: ioi.dk

    Í nýjasta fréttaþætti Tölvuleikjaspjallsins, þar sem þeir Arnór Steinn og Gunnar fara yfir fréttir mánaðarins úr heimi tölvuleikja, var fjallað um þrjú stór mál sem vöktu athygli leikjaáhugafólks: nýja James Bond leik í þróun hjá IO Interactive, væntanlega kvikmynd byggða á Elden Ring og áframhaldandi lokanir á leikjastúdíum hjá EA.

    „Það er ekki oft sem maður bíður í fjögur ár eftir trailernum – en þessi er þess virði,“

    segir Gunnar í þættinum þegar þeir ræða um 007: First Light, þar sem IO Interactive – þekktust fyrir Hitman leikina – stíga inn í heim njósnara og martínídrykkju. Þeir telja stúdíóið hafa burði til að færa Bond nýtt andlit í leikjaformi með sínum útfærslum á dýpt, nákvæmni og frjálsum aðferðum.

    Elden Ring sem bíómynd: Stórhættulegt ævintýri eða snilldarhugmynd?

    Auk Bond varpa þáttastjórnendur ljósi á þær vangaveltur sem nú snúast um Elden Ring kvikmynd – og hvort hægt sé að færa þann heimsbyggða, myrka fantasíuhefð yfir í kvikmyndaform án þess að missa dýptina. Samhliða því voru sagðar nýjar fréttir af EA, sem hefur nú lokað enn einu stúdíói í sinni eigu – atburðarás sem margir telja sýna að risaútgefandinn sé ítrekað að fórna minni teymum fyrir stærri viðskiptahagsmuni.

    Hlaðvarpið Tölvuleikjaspjallið

    Vertu með – Tölvuleikjaspjallið leitar til hlustenda

    Tölvuleikjaspjallið hefur á undanförnum árum byggt sér upp tryggan hlustendahóp með afslöppuðu en fróðlegu yfirbragði, þar sem blandað er saman fréttum, innsýn og húmor.

    Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir og hefur orðið einn helsti vettvangur á íslensku fyrir leikjafólk sem vill fylgjast með því nýjasta – hvort sem það kemur frá tölvuleikjarisum eða smáforritara í svefnpoka.

    Hægt er að hlusta á þáttinn á helstu hlaðvarpsveitum og fylgjast með í gegnum samfélagsmiðla þeirra – og þeir hvetja hlustendur til að senda inn hugmyndir, spurningar eða bara spjall á [email protected].

    007: First Light Elden Ring Electronic Arts - EA Hlaðvarpið Tölvuleikjaspjallið
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Íslenska PUBG samfélagið
      PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí
      14.07.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.