Creative Assembly hefur opinberað Total War: Medieval 3 og staðfest að sagan færist aftur til hinnar sögulegu uppruna sem gerði leikjaseríuna að risanum sem hún er í dag. Tilkynningin markar upphaf afmælisárs Total War sem fagnar 25 árum frá útgáfu fyrsta leiksins.
Síðasti Medieval-leikurinn kom út árið 2006 og hefur stúdíóið síðan ferðast um fjölbreytt tímabil og heimsveldi, allt frá fornu Egyptalandi í Total War, Pharaoh til þríleikja byggða á Warhammer-heiminum. Nú snýr kjarni hugmyndafræðinnar aftur til miðalda og lýsir Creative Assembly Medieval 3 sem hinum fullkomna miðaldaleikheim þar sem leikmenn eiga að sökkva sér dýpra inn í tímann en nokkru sinni fyrr.
Loforð um blöndu sögulegrar nákvæmni og nýstárlegs frelsis í ákvörðunartöku eru höfð í fyrirrúmi og er leiknum lýst sem endurfæðingu sögulegu Total War línunnar fremur en hefðbundnum framhaldsleik.
Medieval 3 er enn á forvinnslustigi og því liggur engin útgáfudagsetning fyrir. Kynningarmyndbandið má sjá hér:
Creative Assembly heldur jafnframt áfram að rækta Warhammer-vígvöllinn sem fagnar tíu ára afmæli árið 2026. Total War, Warhammer 3, Lords of the End Times kemur út næsta sumar með fjórum nýjum goðsagnakenndum leiðtogum. Sá fyrsti sem kynntur er til sögunnar er Nagash, hinn mikli galdramaður dauðans. Ókeypis End Times-uppfærsla fylgir í kjölfarið og á að umbylta herferðinni með nýjum sviðsmyndum og stórfelldum atburðum. Stúdíóið staðfestir jafnframt að Warhammer-línan sé langt frá því að vera komin á endastöð.
Í tilkynningunni kom einnig fram að Creative Assembly hefur þróað nýja kynslóð af eigin leikjavél. Vélina kallast Warcore og á hún að bjóða þróunarteyminu mun öflugri verkfæri og tryggja að framtíðarleikir Total War komi út á PlayStation og Xbox samhliða PC.
En afmælishátíð Total War er ekki búin. Á næstu viku verður kynntur nýr leikur á The Game Awards sem stúdíóið kallar eitt af metnaðarfyllstu verkefnum í sögu seríunnar. Í fyrra bárust fregnir af því að Creative Assembly ynni að Total War byggðum á Star Wars heiminum og því spyrja margir hvort sá leikur verði loks opinberaður.
„Það er ótrúlegt að Total War sé orðið 25 ára,“
sagði Roger Collum, varaforseti seríunnar í tilkynningu.
„Við erum ólýsanlega þakklát fyrir að fá að skapa leiki sem samfélagið okkar spilar áratugum saman. Án þess væri ekkert af þessu mögulegt. Þetta ár er sameiginleg hátíð fyrir alla aðdáendur Total War. Gamla skólanum og þeim nýju, sögulegum og fantasíutengdum. Hér hefst næsti kafli og við hlökkum til næstu 25 ára.“
Creative Assembly hefur átt stormasamt tímabil eftir útgáfu Total War, Pharaoh og fór þá óvenjulegar leiðir með að bjóða hlutaendurgreiðslur eftir gagnrýni leikmanna. Þá var looter-shooter leikurinn Hyenas felldur niður á síðustu stundu. Því virðist stúdíóið nú leita aftur í kjarnann sem byggði upp orðspor þess og vonast til að endurheimta traust og eftirvæntingu leikjafólks um allan heim.
Mynd: totalwar.com




