Hjólreiðakeppnin Tour de France er án efa sú þekktasta í heimi og í ár hefst keppnin í Barcelona á Spáni áður en henni lýkur í París. Alls taka 184 keppendur þátt í 23 liðum og hjóla samtals 3.333 kílómetra á 22 dögum.
Samkvæmt umfjöllun psfrettir.com er opinberi tölvuleikur mótsins væntanlegur fyrir helstu leikjatölvur og tölvur í júní. Leikurinn fær ýmsar nýjungar fyrir árið 2026, þar á meðal nýjar leiðir, breytilegt veður, malarvegi og endurbætt notendaviðmót í keppnum.
Tour de France 2026 kemur út 4. júní fyrir Xbox, PC og PlayStation 5.
Myndir: Steam / Tour de France 2026





