Lið Twisted Minds lyfti bikarnum í PUBG: BATTLEGROUNDS á Esports World Cup 2025 eftir dramatískt lokakvöld nú um helgina þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í síðasta leik. Þetta er annar sigur liðsins á heimsleikunum á aðeins tveimur vikum, en Twisted Minds höfðu áður tryggt sér titilinn í StarCraft II.
Liðið átti jafna frammistöðu í riðlakeppninni og tryggði sér sæti í úrslitum með öruggum stigum. Þegar á lokasviðið var komið spilaði Twisted Minds stórvel, vann tvo „chicken dinners“ í sex leikjum og skapaði sér forskot sem reyndist gulls ígildi.
Í lokaumferðinni féllu tveir leikmenn þeirra snemma úr leik, en Dmytrii „Perfect1ks“ Dubenyuk og Artem „xmpl“ Adarkin héldu haus, náðu þremur útskotum og tryggðu liðinu fimmta sætið í leiknum. Þau stig dugðu til að krýna Twisted Minds heimsmeistara.
Liðsstjórinn Aleksandr „BatulinS“ Batulin lýsti yfir mikilli ánægju í viðtali eftir sigurinn:
„Ég er svo þakklátur liðinu mínu, fjölskyldunni, kærustunni og öllum stuðningsmönnum Twisted Minds. Þetta var ótrúleg tilfinning og mögnuð stemning. Nú getum við kallað okkur heimsmeistara.“
Að auki var Gabriel „sxntastico“ Silva úr ROC Esports útnefndur SONY MVP mótsins. Hann skilaði 18 kills og 25 knockouts, auk þess sem hann hlaut 10.000 Bandaríkjadala í verðlaunafé og sérstaka gullmedalíu fyrir framlag sitt.
Club Championship
Með sigrinum færði Twisted Minds sér inn 1.000 stig í Club Championship og eru nú komnir með samtals 3.200 stig. Það setur þá í harða baráttu við toppsætin, þar sem aðeins 1.200 stig skilja þá frá fyrsta sæti.
Team Falcons endaði í þriðja sæti mótsins og fékk 500 stig, sem tryggði þeim forystu í heildarkeppninni með 200 stiga forskot á Team Liquid. Virtus.pro, sem leiddi fyrir lokadag keppninnar, fékk aðeins 50 stig og deilir nú fjórða sætinu með Twisted Minds.
PUBG: BATTLEGROUNDS er hluti af stærsta rafíþróttaviðburði sögunnar, Esports World Cup 2025, sem fer fram í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, en heildarverðlaunafé keppninnar nemur 71,5 milljónum Bandaríkjadala.
Mynd: esportsworldcup.com




