Margir utan Bandaríkjanna hafa tekið eftir undarlegu mynstri í nýja Battlefield 6. Flestir spilarar sjá það ekki strax, en vandamálið í Battlefield 6 byrjar um kl. 17:00 ET, eða um kl. 21:00 á íslenskum tíma, þá virðist vígvöllurinn tæmast og í staðinn taka bottar við. Frá DICE hefur þó ekkert heyrst.
Fyrir leikmenn í Asíu og Evrópu hefur þetta orðið daglegur viðburður. Um leið og tíminn rennur fram hjá 21:00 tæmist serverinn og kerfið fer að búa til „bot lobbies“ í stað þess að para saman virka notendur. Það sem verra er: að yfirgefa slíka lobbý og reyna aftur skilar sömu niðurstöðu, með öðrum nöfnum en sömu bottana.
Fyrrverandi DICE-hönnuðurinn Jaqub Ajmal, sem nú vinnur hjá Sharkmob Games, staðfesti vandann og sagði að með slökkt á krossspilun fáist aðeins botta lobbý. Hann benti þó á að margir vilji hafa krossspilun óvirka, sem geti útskýrt hluta af vandanum, en ekki allan. Þegar krossspilun er virk ætti engin ástæða að vera fyrir tóma servera, þegar milljónir hafa keypt leikinn.
Í prófunum fyrir útgáfu kom þetta ekki upp, og það gerir þögn DICE enn furðulegri. Í stað þess að bregðast við kvörtunum hefur fyrirtækið sent frá sér uppfærslur fyrir Season 1 þar sem ekkert er minnst á botta vandamálið.
Leikmenn hafa jafnvel reynt að tengjast bandarískum vinum til að sleppa við vandann. Það virkar, en aðeins ef bandarískur notandi leiðir hópinn, og þá er spilað með hátt ping.
Þessi misheppnaða pöruun hefur valdið því að sumir halda að leikurinn sé þegar að deyja, þó svo að grunnurinn sé enn virkur. Það er hins vegar hættuleg ímynd fyrir EA og DICE, því fátt drepur víglínu tölvuleikjanna jafn hratt og tilfinningin að enginn sé eftir til að berjast við.
Ef DICE og EA bregðast ekki við fljótlega gæti þetta litla vandamál orðið að stórri ímyndarkrísu. Því þegar Battlefield-leikirnir verða meira „botfield“ en „battlefield“, þá er hætta á að raunverulegir spilarar yfirgefi vígvöllinn.
Mynd: ea.com




