Close Menu
    Nýjar fréttir

    PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí

    14.07.2026

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026
    1 2 3 … 352 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»„Við þurfum ekki á Nicki Minaj að halda“ – Battlefield 6 leggur áherslu á raunsæi
    Við þurfum ekki á Nicki Minaj að halda“ – Battlefield 6 leggur áherslu á raunsæi
    Tölvuleikir

    „Við þurfum ekki á Nicki Minaj að halda“ – Battlefield 6 leggur áherslu á raunsæi

    Chef-Jack03.08.2025Uppfært03.08.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Við þurfum ekki á Nicki Minaj að halda“ – Battlefield 6 leggur áherslu á raunsæi
    Nicki Minaj í Call of Duty.
    Samvinna við poppstjörnur og skrautleg skinn eins og þetta hafa orðið einkenni Call of Duty-leikjanna á síðustu árum. Battlefield 6 ætlar að snúa við blaðinu og halda sig við raunsæi og hermennsku.

    Framleiðendur Battlefield 6 hafa lýst því yfir að nýjasti leikurinn í seríunni muni forðast skrautleg og yfirgengileg skinn sem hafa á síðustu árum einkennt keppinautinn Call of Duty.

    Í viðtali við DBLTAP sagði hönnunarstjóri leiksins, Shashank Uchil, að útlit og stíll í leiknum verði jarðbundinn og í samræmi við alvarleika og andrúmsloft bardagasviðsins. Þar verði enginn rými fyrir poppstjörnur eða grínkaraktera.

    „Það verður að vera jarðbundið,“

    sagði Uchil í samtali við dbltap.com og bætti við að leikurinn þyrfti ekki á Nicki Minaj að halda. Þessi yfirlýsing felur í sér ákveðna afstöðu gegn þeirri þróun sem mörgum hefur þótt ýta undir yfirborðslegan og sundurlausan stíl í skotleikjum, þar sem skins virðast stundum ganga gegn eðli leiksins sjálfs.

    Framleiðendurnir Alexia Christofi og David Sirland tóku í sama streng og sögðu mikilvægt að leikmenn geti tjáð persónulegan stíl, en að hann verði alltaf í takti við ramma leiksins og hlutverk hvers flokks. Ekki verður því um að ræða samvinnu við teiknimyndapersónur eða tónlistarfólk, heldur verða skinnin hönnuð með tilliti til trúverðugleika og raunsæis.

    Til dæmis má reikna með að Recon-flokkurinn klæðist ghillie-fötum eða felulitun, en ekki neonlituðum búningum með glimmeráferð.

    Aðdáendur seríunnar hafa tekið þessari stefnu fagnandi. Margir telja hana merki um að Battlefield sé að færa sig aftur nær sínum rótum, þar sem alvara og taktísk dýpt skiptu meira máli en tískustraumar. Þeirra á meðal eru leikmenn sem höfðu misst traust á seríunni eftir Battlefield 2042, þar sem notendaviðmót og val á útliti persóna þótti oft óviðeigandi og yfirborðskennt.

    Sú gagnrýni virðist hafa skilað sér til þróunarteymisins, sem nú leggur áherslu á að virða það sem gerði seríuna að valkosti þeirra sem vilja dýpri og metnaðarfyllri bardagaupplifun.

    Samt sem áður ríkir ákveðin tortryggni í hópi leikmanna. Margir velta því fyrir sér hvort Electronic Arts, útgefandi leiksins, standi við stefnuna þegar salan hefst. Reynslan hefur sýnt að fjármagn ræður oft ferðinni, og ef raunsæisleg skinn seljast ekki nógu vel getur áherslan færst aftur í átt að glansandi vitleysu.

    Þrátt fyrir þetta eru fyrstu merki um stefnu Battlefield 6 skýr og leikmenn bíða nú með eftirvæntingu eftir því hvort loforðin haldist þegar leikurinn kemur út.

    Sjá einnig: Battlefield 6: Útgáfudagurinn er staðfestur: 10. október 2025

    Samsett mynd: callofduty.com

    battlefield Battlefield 6 call of duty Electronic Arts - EA
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Íslenska PUBG samfélagið
      PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí
      14.07.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.