
Viðtal við Seamus Blackley, einn af hönnuðum upprunalegu Xbox leikjatölvunnar, hefur vakið töluverðan titring í leikjaheiminum síðustu daga. Ummæli hans, sem birtust fyrst á GamesBeat, fóru á flug um netið þar sem fjölmiðlar og áhrifavaldar gripu tækifærið og slógu upp fyrirsögnum um meintan dauðadóm yfir Xbox.
Tilefnið eru stjórnendaskipti hjá Microsoft. Phil Spencer lét af störfum, Sarah Bond yfirgaf fyrirtækið og Asha Sharma tók við sem forstjóri leikjasviðsins, á meðan Matt Booty var gerður að yfirmanni efnis- og leikjaþróunar. Að mati Seamus er þetta merki um að forstjóri Microsoft, Satya Nadella, hyggist leggja Xbox niður til að beina allri áherslu að gervigreind.
Seamus gengur svo langt að líkja stöðu Sharma við líknarlækni sem eigi að „leiða Xbox hljóðlega inn í nóttina“. Rök hans byggja einkum á því að hún hafi ekki sterkan bakgrunn í leikjaiðnaðinum og hafi starfað á sviði gervigreindar innan Microsoft.
Þessi kenning hefur þó verið gagnrýnd harðlega. Leikjasvið Microsoft skilar umtalsverðum tekjum, milljörðum dollara á ársfjórðungi, og er því vart jaðarstarfsemi sem auðvelt er að strika út. Þá hefur Asha sjálf heitið því að styðja við leikjaþróun og hafnað því að hún hyggist fylla vistkerfið af innihaldi sem knúið er áfram af innihaldslausri gervigreind.
Einnig vekur athygli að Seamus minnist lítt á Matt Booty, sem hefur áratuga reynslu úr leikjaiðnaðinum og gegnir lykilhlutverki í nýju skipuriti Xbox. Margir telja því að hér sé fremur um persónulega túlkun og getgátur að ræða en innsýn í raunverulegar áætlanir Microsoft.
Umræðan varpar þó ljósi á annað vandamál. Hluti leikjafjölmiðla virðist reiðubúinn að blása upp umdeild ummæli fyrrverandi stjórnenda án þess að setja þau í samhengi. Þegar slíkar yfirlýsingar fá að ganga óáreittar milli miðla verður til bergmálshellir þar sem skoðanir breytast hratt í „staðreyndir“.
Hvort Asha og Matt ná árangri með Xbox á eftir að koma í ljós. En að afskrifa leikjatölvuna sem dauðadæmda á grundvelli dramatískra ummæla manns sem starfaði hjá Microsoft fyrir rúmum tveimur áratugum er í besta falli langsótt.
Svar við spádómi um endalok Xbox
Giuseppe Nelva fer yfir ummæli Seamus Blackley í nýju myndbandi og segir hugmyndina um að Microsoft hyggist leggja Xbox niður vera hreina fjarstæðu, en bendir jafnframt á alvarlegt vandamál í leikjafjölmiðlun þar sem heit umræða umbreytist í „staðfestar“ fréttir.




