
Félagarnir Icenosi og Kassi eru lentir í Búdapest þar sem Counter-Strike 2 Major mót ársins 2025 fer fram. Þeir ætla að fylgja íslenskum áhorfendum í gegnum alla upplifunina með daglegu IRL-streymi, myndum og ferðabloggi héðan úr borginni. Næstu daga munu birtast hjá okkur ferskar færslur frá þeim félögum, sjónarhorn á mótið og allt það sem gerist á bak við tjöldin á stærsta CS2-viðburði ársins.

Fyrsti dagurinn hjá þeim var allt annað en viðburðalítill.
„Lentir í Búdapest klukkan 1 um nótt, strax vandamál með hótelið. Máttum ekki checka okkur inn svona seint, en einhver kóngur var að vinna og gaf okkur geggjað tilboð og breytti um herbergi, þar sem ég hafði óvart pantað herbergi fyrir fatlaða,“
skrifar Icenosi í ferðablogginu sínu. Þeir félagar náðu þó hvíld eftir ferðalagið og vöknuðu daginn eftir tilbúnir í ævintýrið.
Dagurinn hófst í verslunarmiðstöð þar sem þeir fengu sér morgunmat sem þó reyndist „ekkert sérstakur“. Verslunarferð leiddi þá síðar út í miðborgina þar sem þeir rákust á jólatorg, fullt af ilmandi mat, sælgæti og stemmningu. Þar var hádegismatur tekinn með stóru og góðri pulsu.

Þegar líða tók á daginn rifjaði Icenosi skyndilega upp að hann væri skráður til leiks fyrir ESEA Inter. Þeir héldu því á Delta Esport Center þar sem hann spilaði leiki í mótinu.
„Gekk frekar vel miðað við að þeir voru með betra elo, en enduðum samt á að tapa öllum leikjunum,“
skrifar hann.

Á leiðinni aftur á hótelið tóku þeir eftir ýmsu skemmtilegu úr borgarlífinu, meðal annars jólaljósaskreytta lest og hinn „rosalega örn“ sem blasti við rétt við hótelið. Kvöldinu lauk á því að þeir pöntuðu sér kvöldmat í gegnum Wolt, sem reyndist „mjög ódýrt miðað við Ísland, bæði matur og Wolt“.

„Förum svo í háttinn og það er endir á dag 1,“
með þessum orðum endar dagbókarfærsla dagsins hjá Icenosa.
Daglegt ferðablogg frá Icenosa og Kassa birtist áfram hér á vefnum næstu daga ásamt myndum og einstöku íslensku esports-sjónarhorni á CS2 Major í Búdapest.
Hér höldum við utan um allar frásagnir þeirra og uppfærslur.
Fylgist með IRL-streymi þeirra hér.





