Close Menu
    Nýjar fréttir

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    1 2 3 … 350 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Icenosi og Kassi mættir til Búdapest – Myndir
    Icenosi og Kassi mættir til Búdapest
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Icenosi og Kassi mættir til Búdapest – Myndir

    Chef-Jack10.12.2025Uppfært12.12.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Icenosi og Kassi mættir til Búdapest
    Kassi og Icenosi á leiðinni út. Spenningur fyrir Major-ævintýrinu orðinn raunverulegur.

    Félagarnir Icenosi og Kassi eru lentir í Búdapest þar sem Counter-Strike 2 Major mót ársins 2025 fer fram. Þeir ætla að fylgja íslenskum áhorfendum í gegnum alla upplifunina með daglegu IRL-streymi, myndum og ferðabloggi héðan úr borginni. Næstu daga munu birtast hjá okkur ferskar færslur frá þeim félögum, sjónarhorn á mótið og allt það sem gerist á bak við tjöldin á stærsta CS2-viðburði ársins.

    Icenosi og Kassi mættir til Búdapest
    Útsýnið frá hótelinu yfir Groupama Arenu

    Fyrsti dagurinn hjá þeim var allt annað en viðburðalítill.

    „Lentir í Búdapest klukkan 1 um nótt, strax vandamál með hótelið. Máttum ekki checka okkur inn svona seint, en einhver kóngur var að vinna og gaf okkur geggjað tilboð og breytti um herbergi, þar sem ég hafði óvart pantað herbergi fyrir fatlaða,“

    skrifar Icenosi í ferðablogginu sínu. Þeir félagar náðu þó hvíld eftir ferðalagið og vöknuðu daginn eftir tilbúnir í ævintýrið.

    Icenosi og Kassi mættir til Búdapest
    Fyrsti morguninn í Búdapest. Léttur morgunverður áður en þeir héldu út í borgina.
    Icenosi og Kassi mættir til Búdapest
    Stóru og safaríku pulsurnar á jólatorginu í Búdapest reyndust góður orkuskammtur fyrir daginn.

    Dagurinn hófst í verslunarmiðstöð þar sem þeir fengu sér morgunmat sem þó reyndist „ekkert sérstakur“. Verslunarferð leiddi þá síðar út í miðborgina þar sem þeir rákust á jólatorg, fullt af ilmandi mat, sælgæti og stemmningu. Þar var hádegismatur tekinn með stóru og góðri pulsu.

    Icenosi og Kassi mættir til Búdapest
    Icenosi mættur í Delta Esport Center að spila ESEA-leiki eftir annasaman dag í borginni.

    Þegar líða tók á daginn rifjaði Icenosi skyndilega upp að hann væri skráður til leiks fyrir ESEA Inter. Þeir héldu því á Delta Esport Center þar sem hann spilaði leiki í mótinu.

    „Gekk frekar vel miðað við að þeir voru með betra elo, en enduðum samt á að tapa öllum leikjunum,“

    skrifar hann.

    Icenosi og Kassi mættir til Búdapest
    Jólaljósaskreyttur sporvagn í kvöldmyrkri Búdapestar. Ein af litríku svipmyndunum sem félagarnir rákust á.

    Á leiðinni aftur á hótelið tóku þeir eftir ýmsu skemmtilegu úr borgarlífinu, meðal annars jólaljósaskreytta lest og hinn „rosalega örn“ sem blasti við rétt við hótelið. Kvöldinu lauk á því að þeir pöntuðu sér kvöldmat í gegnum Wolt, sem reyndist „mjög ódýrt miðað við Ísland, bæði matur og Wolt“.

    Icenosi og Kassi mættir til Búdapest
    Styttan af erninum við hótelið reyndist eitt af fyrstu kennileitum ferðarinnar og vakti strax athygli þeirra.

    „Förum svo í háttinn og það er endir á dag 1,“

    með þessum orðum endar dagbókarfærsla dagsins hjá Icenosa.

    Daglegt ferðablogg frá Icenosa og Kassa birtist áfram hér á vefnum næstu daga ásamt myndum og einstöku íslensku esports-sjónarhorni á CS2 Major í Búdapest.

    Hér höldum við utan um allar frásagnir þeirra og uppfærslur.

    Fylgist með IRL-streymi þeirra hér.

    counter strike Counter Strike 2 Icenosi Icenosi og Kassi á Major í Búdapest 2025 Íslenskt efni Kassi Major Búdapest 2025 picks
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.