Allt er komið á fullt í íslenska PUBG-samfélaginu og fram undan er þétt og metnaðarfull dagskrá fyrir keppnistímabilið 2026. Mótahald ársins spannar allt frá upphitunarscrimmum og sjálfstæðum aukamótum yfir í heila deildarkeppni og loks Íslandsmeistaramót þar sem krýndir verða meistarar vorsins. Ljóst er að bæði ný og rótgróin lið fá næg tækifæri til að láta ljós sitt skína.
Upphitunarscrim fyrir GameTíví-deildina – 9. janúar
Fyrsta mótið fer fram föstudaginn 9. janúar þegar Tier-2 upphitunarscrim verður haldið í aðdraganda GameTíví-deildarinnar 2026. Þátttaka í scrimminu er algjörlega ókeypis og skráning opin öllum áhugasömum liðum.
Scrimmið er sérstaklega ætlað þeim liðum sem náðu ekki í efstu sex sæti á Íslandsmeistaramótinu og býður upp á kjörið tækifæri til að prófa nýtt line-up, fínstilla taktík og ná keppnistakti áður en alvara tímabilsins hefst. Kvöldið verður keyrt í keppnisformi og nýtist sem fullkomin upphitun fyrir deildarkeppnina sem hefst síðar í janúar. Sigurvegari scrimsins hlýtur að launum frítt sæti í fyrsta móti GameTíví-deildarinnar.
Dúó-mót í febrúar
Þann 20. febrúar fer fram dúó-mót sem stendur utan GameTíví-deildarinnar. Um er að ræða sjálfstætt mót sem ætlað er sem skemmtilegur aukaviðburður á tímabilinu, þar sem leikmenn geta stillt saman tveggja manna sveitum og prófað sig áfram í aðeins öðruvísi keppnisumhverfi.

GameTíví-deildin | PUBG Deild Íslands 2026
GameTíVí-deildin, sjálf PUBG Deild Íslands 2026, verður leikin yfir fimm keppniskvöld. Keppt verður 18. janúar, 8. febrúar, 1. mars, 22. mars og 12. apríl. Bestu lið landsins safna stigum jafnt og þétt yfir tímabilið og berjast um sæti í Íslandsmeistaramótið þar sem úrslitin ráðast.
Íslandsmeistaramótið 2026
Íslandsmeistaramótið í PUBG 2026 fer fram í tveimur hlutum, 3. maí og 10. maí. Þar verða Íslandsmeistarar vorið 2026 krýndir eftir harða baráttu þeirra fremstu liða sem hafa staðið sig best yfir tímabilið.
Að lokum sendir mótastjórn IPL kærar þakkir til 354 esports og Next Level Gaming fyrir dýrmætan stuðning við deildina og íslenskt PUBG-samfélag í heild sinni.
Fylgist vel með á Facebook-síðu Íslenska PUBG samfélagsins hér.




