
Frumkvæði Evrópubúa á vegum Stop Killing Games hefur náð mikilvægum áfanga, en átakið hefur nú safnað tæplega 1,3 milljónum staðfestra undirskrifta. Undirskriftasöfnunin, sem hófst árið 2024, miðar að því að bregðast við þeirri þróun að útgefendur loki netleikjum alfarið og geri þá óspilanlega, líkt og gerðist þegar The Crew var lokað af Ubisoft.
Sjá einnig: Þú átt ekki leikinn sem þú keyptir
Með þessum árangri hefur markmiði frumkvæðisins, einni milljón undirskrifta, verið náð með góðum fyrirvara. Samkvæmt færslu Moritz Katzner, framkvæmdastjóra verkefnisins, á Reddit-samfélaginu r/StopKillingGames gengur undirbúningur nú hratt fyrir sig og stefnt er að því að leggja frumkvæðið formlega fyrir European Commission síðar í febrúar.
Eftir að ólögmætar eða ógildar undirskriftir voru hreinsaðar úr kerfinu stóðu eftir nær 1,3 milljónir gildra stuðningsyfirlýsinga. Þýskaland leiðir listann með rúmlega 233 þúsund undirskriftir, en Frakkland, Pólland og Spánn fylgja þar fast á eftir.
Sjá einnig: Tölvuleikir í útrýmingarhættu
Í myndbandi sem birt var samhliða tilkynningunni segir Ross Scott, stofnandi átaksins og þekktur undir nafninu Accursed Farms, að næsti áfangi verði afhending undirskriftanna í Brussel. Hann bætir við að frekari frétta sé að vænta á næstunni á meðan verkefnið heldur áfram að byggja upp meðbyr.
Aðstandendur Stop Killing Games leggja áherslu á að frumkvæðið snúist hvorki um eignarhald né hugverkarétt leikja eftir að stuðningi lýkur. Þá sé heldur ekki verið að takast á við varðveislu tölvuleikja í víðari skilningi. Markmiðið er skýrt, að koma í veg fyrir að útgefendur geti slökkt leiki úr fjarlægð án þess að bjóða upp á raunhæfa leið til að halda þeim spilandi án aðkomu útgefandans.
Nýlegt dæmi um leik sem hvarf nánast með öllu er Anthem, misheppnaður netleikur frá BioWare sem var tekinn úr umferð þegar stuðningi lauk. Á hinn bóginn má nefna Marvel’s Avengers, sem þrátt fyrir að hafa verið tekinn úr sölu eftir að leyfissamningar runnu út, er enn að fullu spilanlegur vegna netkerfis leiksins. Þar liggur að mati Stop Killing Games lykilmunurinn.



