
Lokakvöld GameTíví-deildarinnar í PUBG: Battlegrounds fór fram í gærkvöldi þar sem deildarmeistarar voru krýndir eftir fimm leikja keppni.
Kvöldið markaði endapunkt á spennandi deildarkeppni þar sem liðin börðust um sæti í lokamótinu sem fram fer dagana 3. og 10. maí.

PNGR stóð uppi sem sigurvegari deildarinnar með 750 stig eftir afar stöðuga frammistöðu. Omni fylgdi fast á eftir í öðru sæti og Hlandblettur hafnaði í því þriðja.
Alls tryggðu 16 lið sér áframhald í keppninni. Þau lið sem komust áfram voru eftirfarandi:
PNGR
Omni
Hlandblettur
FresH
Team Iceland
KNGR
NicCageFanClub
354esports
Hraunbitar
Ice-SaWaDee
Oldies Göngudeildin
Trúðalestin
Trúðapestin
Muffintop
Prumpulestin
CPK
Streymt var beint frá keppninni á Twitch-rás GameTíví og fylgdust margir með þegar lokaúrslitin réðust. Nú tekur við lokamótið sem haldið verður, eins og áður segir 3. og 10. maí, þar sem bestu lið landsins munu etja kappi og úrslitin ráða því hver stendur uppi sem Íslandsmeistari í PUBG að þessu sinni.



