Í gær fór fram íslenskt æfingamót í PUBG: Battlegrounds, þar sem leikið var í Squads, FPP.
Alls skráðu 16 lið sig til leiks en tvö þeirra duttu út á síðustu metrunum, þannig að 14 lið mættu til leiks og kláruðu mótið.
Mótið var svokallað scrim, æfingamót þar sem liðin stilla saman strengi fyrir komandi Íslandsmeistaramót sem fram fer dagana 3. og 10. maí. Það var því bæði spenna og ákveðin tilraunastarfsemi í gangi hjá liðunum, þar sem sum þeirra prófuðu nýjar uppstillingar og leikstíl.
OMNI stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins með 80 stig, skammt á undan PNGR sem endaði með 78 stig. TEAM ICELAND fylgdi þar á eftir með 65 stig og KNGR í fjórða sæti með 58 stig.
Heildarstig liða í mótinu voru eftirfarandi:
OMNI 80
PNGR 78
TEAM ICELAND 65
KNGR 58
FRESH 47
354 ESPORTS 32
HLANDBLETTUR 32
OLDIES 28
ICESAWADEE 23
TRUDAPESTIN 20
TRUDALESTIN 18
KALDIRPUTTAR 13
PRUMPÚLESTIN 9
MUFFINTOPS 3
HOT DROP 0
NIC CAGE FAN CLUB 0
Þrátt fyrir að um æfingamót hafi verið að ræða mátti sjá að nokkur lið eru farin að taka skýra forystu og mótið gefur ákveðna vísbendingu um hvað má búast við þegar alvaran tekur við í maí.
Mynd: pubg.com





