Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Skráning er nú hafin í íslensk rafíþróttamót RÍSÍ fyrir árið 2026 og markar það upphaf nýs keppnistímabils hjá Rafíþróttasamband Íslands. Sambandið er komið á fullt skrið og boðar mótahald í fimm af vinsælustu keppnisleikjum landsins. Keppni verður haldin í Fortnite, Rocket League, Counter-Strike, Overwatch og Dota 2. Skráning í mótin fer fram á heimasíðu RÍSÍ þar sem nánari upplýsingar um fyrirkomulag, tímasetningar og þátttökuskilyrði má finna. Þjálfaranámskeið RÍSÍ – 11. Janúar 2026 Að auki stendur RÍSÍ fyrir þjálfaranámskeiði 11. janúar 2026 og er skráning þar þegar hafin. Skráning á námskeiðið er í fullum gangi og kostar þátttaka 24.900 krónur. Námskeiðið…
Netflix heldur áfram að móta leikjastefnu sína og hefur nú fest kaup á eistneska sprotafyrirtækinu Ready Player Me, sem sérhæfir sig í svokallaðri avatar-tækni sem virkar milli leikja. Með henni geta leikmenn notað sömu stafrænu persónuna í mörgum ólíkum leikjum, óháð stíl eða tæknilegri uppbyggingu þeirra, að því er fram kemur í tilkynningu frá Netflix. Forstjóri Ready Player Me, Timmu Tõke, greindi frá kaupunum í færslu á LinkedIn. Þar kemur fram að samningurinn sé hluti af nýrri leikjastefnu Netflix, sem leggur sífellt meiri áherslu á aðgengilega fjölspilunarleiki og aðlögun á eigin vörumerkjum og efni streymisveitunnar yfir í leikjaform. Um tuttugu…
Arc Raiders er kominn á útsölu í fyrsta sinn síðan hann kom út í lok október og það aðeins nokkrum mánuðum eftir útgáfu. Samhliða vetrarútsölum á Steam og Xbox hefur verðið verið lækkað um tuttugu prósent og stendur nú í 32 Bandaríkjadölum, niður úr 40 dollurum sem þótti strax hóflegt upphafsverð miðað við umfang og gæði leiksins. Arc Raiders leit dagsins ljós 30. október og hlaut strax afar jákvæðar viðtökur gagnrýnenda og spilara. Leikurinn sameinar spennu PvP bardaga við PvE áskoranir í krefjandi survival umhverfi þar sem hver ferð út á kortið getur endað annaðhvort í sigri eða algjörri niðurlægingu.…
Það sem eitt sinn var léttur brandari á milli CS-nörda hefur nú þróast í alvarlegt drama sem hefur heltekið samfélagið. Ummæli Ivans Ivan „zweih“ Gogin um að makazze yrði settur á bekkinn innan sex mánaða frá komu sinni til Natus Vincere (NAVI) hafa elta þann síðarnefnda allt tímabilið. ☝️ zweih’s take: NAVI rookie makazze won’t last more than six months. pic.twitter.com/ldFkCgSNAB — CS2 NEWS (@CS2News_EN) July 1, 2025 Meme sem poppaði reglulega upp í hvert skipti sem liðinu gekk ekki sem skyldi og var orðið fastur liður í umræðunni. Í þessari viku lokaðist hins vegar hringurinn með óvæntum hætti. Það…
Hogwarts Legacy heldur áfram að slá hvert metið á fætur öðru og hefur nú selst í yfir 40 milljónum eintaka á heimsvísu. Þetta staðfesti Warner Bros. Games í fyrradag og um leið festi leikurinn sig í sessi sem stærsta leikjaútgáfa í sögu fyrirtækisins, bæði hvað varðar vinsældir og tekjur. Leikurinn hefur notið gríðarlegrar velgengni á fjölmörgum kerfum, þar á meðal PlayStation 5, Xbox Series X|S, PC, PlayStation 4, Xbox One og Nintendo Switch, auk nýrri útgáfa. Þessi breiða dreifing hefur gert Hogwarts Legacy að einum aðgengilegasta stórleik síðari ára og skýrir að hluta hversu hratt salan hefur náð þessum áfanga.…
Netflix stígur stórt skref inn á knattspyrnuleikjamarkaðinn þegar FIFA snýr aftur í nýjum búningi og verður aðgengilegt á Netflix Games sumarið 2026, samhliða heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Um er að ræða endurhannaðan FIFA-leik sem verður eingöngu í boði fyrir áskrifendur Netflix og verður spilanlegur í snjallsímum, bæði einn og með vinum á netinu. Leikurinn er þróaður og gefinn út af Delphi Interactive og leggur áherslu á að fanga tilfinningar, spennu og dramatík heimsmeistaramótsins í aðgengilegu og leikrænu formi. Markmiðið er að skapa knattspyrnuleik sem er fljótlegur að læra en krefjandi að ná tökum á og henti jafnt nýjum spilurum sem reynslumiklum…
The Game Awards heldur áfram að styrkja stöðu sína sem stærsti árlegi viðburður tölvuleikjaiðnaðarins. Samkvæmt nýjum tölum horfðu um 171 milljón manns á verðlaunahátíðina í beinni útsendingu fyrr í þessum mánuði, sem er umtalsverð aukning frá síðasta ári. Þetta jafngildir um 17 milljóna áhorfa fjölgun frá árinu 2024 og nemur hækkunin um 11 prósent. Í umfjöllun Variety kemur fram að tölurnar taki þó ekki til áhorfs í gegnum Amazon Prime Video, sem bauð upp á útsendingu frá hátíðinni í fyrsta sinn í ár. Mældar áhorfstölur ná meðal annars til YouTube, Twitch, TikTok, Facebook og Instagram Live, auk svæðisbundinna streymisþjónusta í…
Mikil spenna ríkti í síðustu umferðum Íslandsmótsins í parasveitakeppni í bridds þar sem keppni hinna efstu var jöfn og spennandi og margar öflugar sveitir gátu orðið Íslandsmeistarar, allt fram að síðustu spilum. Þegar yfir lauk reyndist sveit Strengs hlutskörpust og er því Íslandsmeistari í parasveitakeppni 2025. Í sigursveitinni spiluðu María Haraldsdóttir Bender-Stefán Stefánsson og Harpa Fold Ingólfsdóttir, Vignir Hauksson, auk þess sem Skúli Skúlason spilaði einnig í sveitinni. Í fréttatilkynningu frá Bridgesambandi Íslands kemur fram að í parasveitakeppni mynda einstaklingar af ólíku kyni makkerskap. Mótið þykir fyrir vikið sérlega skemmtilegt og aðsókn var góð. Konur hafa verið í miklum meirihluta…
FULL SENSE festi nafn sitt rækilega í sögubækur PUBG þegar liðið tryggði sér sigur á PUBG Global Championship 2025 á heimavelli í Taílandi. Mótið fór fram sem hluti af PUBG UNITED 2025 hátíðinni og markaði hápunkt PUBG Global Series tímabilsins, þar sem sterkustu lið heims mættust í lokaorrustu ársins. Keppnin stóð frá 28. nóvember til 14. desember og alls tóku 33 lið þátt. FULL SENSE mætti til leiks sem Wild Card lið mótsins, með sæti í úrslitakeppninni fulltrúi þess lands sem hýsti mótið. Sú staða reyndist þó engan veginn örugg leið til sigurs, því mótstaðan var afar hörð. Þar bar…
Það verður sannkölluð lootveisla í kvöld þegar GameTíví fer í beina útsendingu með ARC Raiders klukkan 20:00. ARC Raiders hefur vakið mikla athygli fyrir sterka sjónræna framsetningu, þéttan spilunarkjarna og áherslu á samvinnu þar sem hvert skot og hver ákvörðun skiptir máli. Í kvöld gefst áhorfendum færi á að fylgjast með beinni spilun, fá innsýn í leikjakerfin og upplifa spennuna sem skapast þegar lootið er undir og ARC-vélarnar láta finna fyrir sér. Útsendingin fer fram í beinni á Twitch-rás GameTíví og hefst klukkan 20:00. Fyrir þá sem hafa gaman af taktískri spilun, sci-fi stemningu og alvöru loot-ævintýrum ætti þetta að…
