Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Counter-Strike hélt áfram að vera tekjuhæsta rafíþróttin árið 2025 þegar kemur að verðlaunafé. Samkvæmt gögnum frá Esports Charts var heildarverðlaunafé í Counter-Strike 2 mótum á árinu rúmar 32 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir um 4,2 milljörðum króna miðað við grófan útreikning þar sem einn dalur nemur um 130 krónum. Esports Charts bendir á að þetta samsvari 41,5 prósenta aukningu frá fyrra ári og endurspegli þéttara keppnisdagatal eftir innleiðingu Valve Regional Standings. Með breytingunum hafa mótahaldarar þurft að leggja meiri áherslu á verðlaunafé til að laða að lið, þar sem eldri samstarfslíkön hurfu að mestu. Af þeim sökum buðu aðilar á borð…

Lesa meira

Árið 2025 hefur reynst viðburðaríkt í baráttunni gegn svindli í League of Legends og þar hefur eitt nafn skorið sig sérstaklega úr. Drew Levin, yfirmaður vörustefnu og þróunar hjá Riot Games, hefur eytt stórum hluta ársins í að taka opinberlega á svindlurum, smurf-reikningum og sölu á aðgöngum að leiknum. Ekki í lokuðum yfirlýsingum eða þurrum tilkynningum, heldur beint á X, áður þekkt sem Twitter. Drew varð sífellt háværari á samfélagsmiðlum þegar leið á árið og lét ekki deigan síga þegar kom að því að svara leikmönnum sem að hans mati voru hluti af vandanum sem hefur spillt milljónum leikja. Hvort…

Lesa meira

PUBG Esports stendur frammi fyrir umtalsverðum kaflaskilum þegar keppnistímabilið 2026 gengur í garð. Eftir sjö ár af stöðugri uppbyggingu og þróun hefur verið tekin afgerandi ákvörðun sem mótar framtíð greinarinnar, en frá og með 2026 verður keppni alfarið leikin í þriðju persónu sjónarhorni, svokölluðu TPP. Breytingin felur ekki í sér höfnun á þeirri arfleifð sem byggð var upp í fyrstu persónu sjónarhorni. Þvert á móti er markmiðið að víkka út vettvanginn og færa keppnisupplifunina nær því sem stærstur hluti leikmanna þekkir. Meirihluti þeirra um það bil eins milljarðs leikmanna sem hafa spilað PUBG hefur gert það í TPP, og þar…

Lesa meira

Öryggisgalli í Escape From Tarkov hefur á síðustu dögum valdið miklu uppnámi meðal spilara, eftir að heilum prófílum var einfaldlega þurrkað út á augabragði. Fyrir marga reyndist þetta óvænt og afar súr jólagjöf, þegar leikurinn bauð þá ekki velkomna inn í prófílinn sinn heldur beint í upphafsskjáinn þar sem velja þarf fylkingu, gælunafn og útlit persónu. Allur fyrri árangur horfinn, eins og hann hafi aldrei verið til. Tilkynningar um svokallaðar “mystery wipes” hafa flætt yfir samfélagsmiðla og spjallsíður tengdar Tarkov, og ljóst er að hér er ekki um hefðbundið wipe að ræða. Samkvæmt fyrstu upplýsingum virðist um að ræða alvarlegan…

Lesa meira

Keppnisárið 2026 í Counter-Strike 2, þegar horft er til erlendra móta, stefnir í eitt það þéttasta og metnaðarfyllsta frá upphafi.  Samkvæmt samantekt frá pley.gg liggur nú fyrir heildaryfirlit yfir staðfest CS2-mót ársins, allt frá stórmótum og Major-keppnum yfir í alþjóðlegar mótaraðir og lykilmótum í opna keppniskerfinu sem tók við eftir að Valve lagði niður samstarfsdeildir sínar. ESL og BLAST leiða keppnisárið, ásamt mótshöldurum á borð við PGL, StarLadder og fleiri. Listinn er ekki endanlegur, heldur uppfærður jafnóðum eftir því sem nýjar upplýsingar liggja fyrir. Hér að neðan er yfirlit yfir þau mót sem þegar hafa verið staðfest og verðlaunafé fært…

Lesa meira

Verð á stórleikjum gæti nálgast 100 dali á næstu árum og samkvæmt fyrrverandi leikstjóra Call of Duty er nær óhjákvæmilegt að sú þróun hefjist með Grand Theft Auto 6. Í viðtali við Esportsbets ræddi Greg Reisdorf, fyrrverandi multiplayer hönnunarstjóri Call of Duty, um væntanlegt verðþak á svokölluðum AAA leikjum. Að hans mati vilji enginn útgefandi vera sá fyrsti til að setja 100 dala verðmiða á leik, nema sá útgefandi sem hefur bolmagn og traust til þess. Þar nefnir hann sérstaklega Grand Theft Auto 6. Reisdorf telur að GTA 6 geti brotið þessa óformlegu verðþaki án þess að það hafi teljandi…

Lesa meira

Fortnite stefnir á að kynna nýja útlitsmuni byggða á Harry Potter-heiminum. Tilkynningin hefði að öllum líkindum farið hefðbundna leið með markaðsefni, ef ekki hefði verið fyrir óvenjulega aðgerð aðila sem þekktur er fyrir óstaðfestar uppljóstranir og kaus viljandi að spilla gleðinni í mótmælaskyni. Lekinn kom frá X reikningnum Fortnite Underground, sem birti upplýsingar um Harry Potter-útlitsmunina áður en Epic Games hafði staðfest samstarfið opinberlega. Opinion – I was the leaker who spoiled Harry Potter coming to #Fortnite. Here’s why ⬇️ Last year, Harry Potter creator J.K. Rowling claimed that Imane Khelif, a female boxer, was actually born as a man.…

Lesa meira

Kæru lesendur esports.is. Þegar árið er að renna sitt síðasta skeið og jólin banka upp á með meiri krafti en endaboss á hæsta erfiðleikastigi, viljum við senda ykkur okkar innilegustu jóla- og áramótakveðjur. Árið sem er að líða hefur verið algjörlega epic fyrir esports.is og móttökurnar hafa farið langt fram úr væntingum. Þið hafið snúið aftur dag eftir dag, lesið, deilt og tekið þátt í umræðunni og þannig sýnt að þörf er fyrir vandað og lifandi efni um rafíþróttir og tölvuleiki. Esports.is hefur birt nýjar fréttir dag hvern allt árið og hraður vöxtur vefsins ber skýrt vitni um að hann…

Lesa meira

Starfsfólk á hóteli í Kína, sem hefur byggt starfsemi sína á sérsniðinni þjónustu við spilara og rafíþróttakeppendur, hefur greint frá einu óhugnanlegasta tilviki sem komið hefur upp innan veggja staðarins. Samkvæmt umfjöllun breska slúðurblaðsins The Sun kom í ljós að herbergi gestsins var, sem hafði dvalið þar í heil tvö ár, í algjörri rúst þegar hann loks tékkaði út. Eins og The Sun greinir frá, hafði maðurinn aldrei hleypt ræstingarfólki inn í herbergið allan tímann. Þegar starfsfólk opnaði dyrnar blasti við þeim sjón sem lýst hefur verið sem martröð. Rusl í hrönnum, klósett umlukið notuðum klósettpappír og þykk, brúnleit skán…

Lesa meira

Vince Zampella, einn áhrifamesti frumkvöðull tölvuleikjaiðnaðarins og einn af höfundum Call of Duty, er látinn. Hann lést í hörmulegu bílslysi í San Gabriel-fjöllunum nærri Los Angeles, að því er bandarískir fjölmiðlar greina frá. Zampella var víða þekktur fyrir brautryðjendastarf sitt innan skotleikja og var síðar stofnandi Respawn Entertainment, þar sem hann stýrði þróun leikja á borð við Titanfall og Apex Legends. Undanfarin ár hafði hann einnig leitt vinnu við nýjustu útgáfu Battlefield-leikjarins sem vakti talsverða athygli á þessu ári. We’re heartbroken by the passing of our founder and dear friend Vince Zampella. Vince was a titan and legend of this…

Lesa meira