Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Leikjaframleiðandinn Rockstar Games, sem vinnur nú að væntanlega risaleiknum Grand Theft Auto 6, segir að uppsagnir rúmlega 30 starfsmanna nú á dögunum hafi ekkert haft með verkalýðsmál að gera. Samkvæmt fyrirtækinu voru starfsmennirnir látnir fara fyrir að leka trúnaðarupplýsingum um verkefni í opinberum spjallrásum. Sjá einnig: Rockstar sakað um verkalýðsbrot eftir hópuppsögn í tengslum við GTA 6 „Í síðustu viku gripum við til aðgerða gegn litlum hópi einstaklinga sem voru staðnir að því að hafa deilt og rætt trúnaðarupplýsingar á opinberum vettvangi, sem brýtur gegn innri reglum fyrirtækisins,“ sagði talsmaður Rockstar í samtali við Bloomberg. „Þetta tengdist á engan hátt…
Íslenska leikjaiðnaðarsamfélagið stendur frammi fyrir tímamótum í lok mánaðarins, þegar Reykjavík Game Summit fer fram í fyrsta sinn. Viðburðurinn verður haldinn fimmtudaginn 27. nóvember 2025 í Vinnustofu Kjarvals, Fantasíusal. Að viðburðinum stendur Game Makers Iceland, sem skipuleggur heilan dag tileinkaðan fagfólki í tölvuleikjagerð. Viðburðurinn er ætlaður leikjahönnuðum, söguhöfundum, forriturum og stjórnendum sem vilja fræðast, deila reynslu og efla tengslanetið innan greinarinnar. Dagskráin blandar saman fyrirlestrum, samræðum og innblæstri frá fremstu sérfræðingum í leikjaiðnaði, bæði innlendum og erlendum. Meðal ræðumanna eru: Greg Hennessey, hönnunarstjóri hjá CCP Games. Harry Krueger, fyrrverandi aðalleikjahönnuður hjá Housemarque og Returnal. Johan Pilestedt, stjórnandi hjá Arrowhead Studios…
Leikjaframleiðandinn Rockstar Games, sem stendur á bak við væntanlegan stórleik Grand Theft Auto 6, hefur verið sakaður um brot á verkalýðslögum og svonefnt union-busting, eftir að fyrirtækið lét frá sér fara á bilinu 30 til 40 starfsmenn. Samkvæmt heimildum Bloomberg voru allir starfsmennirnir sagðir tengjast stofnun stéttarfélags innan fyrirtækisins, eða hafa tekið þátt í undirbúningi þess. Rockstar hefur hins vegar haldið því fram að um hafi verið að ræða „alvarlegt agabrot“ og að engar aðrar ástæður hafi legið að baki uppsögnunum. Talsmaður móðurfyrirtækisins Take-Two Interactive, Alan Lewis, sagði við Bloomberg að fyrirtækið „styddi að fullu við markmið og stefnu í…
Fjórða og síðasta mótið í GameTíví-deildinni í leiknum PUBG: Battlegrounds fór fram í gær, sunnudaginn 2. nóvember, og var barist af mikilli hörku allt til loka. Omni stóð uppi sem sigurvegari í gærkvöldi, Hlandblettur fylgdi fast á eftir í öðru sæti og PNGR tryggði sér þriðja sætið. Að lokinni keppni í deildinni er nú ljóst hvaða lið hafa tryggt sér sæti í Íslandsmeistaramótinu, þar sem aðeins 16 efstu halda áfram í úrslitin. Hægt er að horfa á upptökuna af beinu útsendingunni frá mótinu í gær hér: Íslandsmeistaramótið fer fram helgina 6.–7. desember 2025, þar sem 16 bestu lið landsins mætast…
Eftir eina umdeildustu uppfærslu Counter-Strike 2 frá upphafi sendi Valve frá sér smá uppfærslu. Uppfærslan tengist þó ekki skinsmarkaðnum sem logaði eftir svokallaða Knife Trade-Up uppfærslu nú á dögunum. Sjá einnig: Markaðurinn titrar eftir nýjustu CS2 uppfærslunni Sú breyting gerði leikmönnum í fyrsta sinn kleift að skipta Covert skns í hnífa eða hanska, sem hafði í för með sér víðtækt verðfall á markaðnum og kallaði á háværar kröfur um að Valve myndi afturkalla eða skýra breytinguna nánar. Það gerðist hins vegar ekki. Í staðinn einbeitti nýjasta uppfærslan sér alfarið að spilun og stöðugleika: Að svo stöddu hafa engar breytingar verið…
Eftir fjögur ár af stöðugum uppfærslum og nýlegri útgáfu sem átti að blása lífi í leikinn, hefur Amazon Games ákveðið að stöðva alla frekari þróun á New World: Aeternum. Leikurinn mun áfram vera í gangi út árið 2026, en þar með lýkur ævintýri sem margir töldu að gæti orðið fyrsta stóra MMO-velgengni Amazon. Ákvörðunin kemur í kjölfar umfangsmikilla niðurskurða hjá Amazon, þar sem Amazon hefur sagt upp meira en 14 þúsund starfsmönnum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að þetta sé hluti af „stefnubreytingu“ sem feli meðal annars í sér að hætt verði við stóran hluta þróunar stórra verkefna innan tölvuleikjaiðnaðarins,…
Það er allt undir þegar fjórða og síðasta mótið í GameTíví-deildinni fer fram sunnudaginn 2. nóvember. Deildin hefur vakið mikla athygli meðal íslenskra PUBG-spilara, og nú stendur baráttan um fyrsta meistaratitilinn sem hæst. Hverjir verða krýndir fyrstu deildarmeistarar GameTíVí-deildarinnar? Enn er opið fyrir ný lið að stökkva inn í slaginn, svo ef þú og félagar þínir hafið átt góðan dag á Erangel eða Miramar, þá er þetta tækifærið. Það er alls ekki of seint að taka þátt, enn eru stig í boði og hver lota gæti ráðið úrslitum. Skráning hér. Fyrstu þrjú liðin hljóta glæsileg verðlaun, þannig að það borgar…
HLTV.org, stærsta tölfræðivefsíða Counter-Strike heims, hefur uppfært reikniformúlu sína fyrir svokallaða Rating 3.0 kerfið sem metur frammistöðu leikmanna á tölfræðilegan hátt. HLTV er grunnurinn að flestum umfjöllunum og umræðum um leikmannagæði í CS2-heiminum, og rating-tölurnar hafa lengi verið viðmiðunarmörk í mælingum á árangri atvinnumanna. Uppfærslan, sem HLTV kallar „targeted recalibration“, snýst í grunninn um að færa vogarskálarnar aftur í átt að tölfræðinni sjálfri. Kills fá aukið vægi í heildarformúlunni, á meðan áhrif Round Swing eru minnkuð. Það er bein leiðrétting í kjölfar gagnrýni samfélagsins, þar sem margir töldu að nýja formúlan hefði ofmetið samhengi einstakra atvika á kostnað tölfræðilegs árangurs…
Bókasafnið er orðið vígvöllur og síðasta von mannkynsins heitir Ariana Virellis. Í væntanlegum leiknum Ariana and the Elder Codex tekur þessi bókavörður að sér hættulegt verkefni: að bjarga töfrum heimsins með því að laga bækur innan frá. Í frétt á psfrettir.com kemur fram að Ariana er enginn venjulegur bókavörður heldur sú eina sem ræður við forna list bókagaldur, hæfileika sem gerir henni kleift að stíga inn í bækur og breyta örlögum þeirra. Þegar sjö hetjubækur, svokallaðir Hero Codices, verða fyrir skemmdum og galdur heimsins hverfur, verður Ariana kölluð til vopna með bleki, spjótum og töfrum. Spilarar ferðast inn í hvern…
Japanska fyrirtækið Top Hat Studios hefur gefið út skotleikinn Silly Polly Beast, eftir einyrkjann Andrei Chernyshov. Leikurinn kom út á Steam, PlayStation 4 og 5, auk Xbox Series X|S og var aðgengilegur í dag frá klukkan 15:00 að íslenskum tíma. „Silly Polly. Stupid, silly Polly, you’ve ruined everything. Want a cracker?“ Með þessum kuldalegu orðum hefst óhugnanlegt ferðalag þar sem raunveruleiki og martröð renna saman. https://www.youtube.com/watch?v=lBwVIzD5t40 Í Silly Polly Beast fylgja spilarar hinni óheppnu Polly, sem hefur sloppið úr draugalegu munaðarleysingjahæli og reikar nú niður í sjálfan undirheiminn. Þar þarf hún að takast á við ógnvekjandi verur, sársaukafullar minningar. Leikurinn…
