Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Nýverið birtist á leikjaveitunni Steam leikur sem hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir að vera áróðursverkefni í þágu rússneska hersins. Leikurinn, er free to play, sem ber nafnið Squad 22: ZOV, er þróaður af SPN Studio og gefinn út af Zarobana Entertainment, og segist bjóða upp á taktíska hernaðaraðgerð byggða á reynslu rússneskra hermanna frá stríðinu í Úkraínu. Opinber stuðningur rússneska hersins Á vefsíðu leiksins kemur fram að hann hafi verið þróaður með stuðningi frá hernaðardeild rússneska hersins. Leikurinn er sagður vera „opinberlega mælt með af rússneska hernum sem grunnkennsluefni í fótgönguliðs-taktík fyrir kadetta og meðlimi Yunarmii.“ Yunarmiya, eða „Ungherinn“, er…

Lesa meira

Löng röð myndaðist utan við verslun í Lágmúla seint í gærkveldi þegar áhugasamir kaupendur til að tryggja sér eintak af nýju Nintendo Switch 2 leikjatölvunni. Röðin náði eftir gangstéttinni, meðfram byggingunni, og var greinilegt að margir höfðu komið sér fyrir með góðum fyrirvara. Þetta er fyrsta opinbera frumsala nýju tölvunnar hér á landi og mátti merkja eftirvæntingu í hópi þeirra sem biðu — sumir höfðu mætt með teppi, aðrir með drykki og tónlist. Starfsmenn verslunarinnar höfðu yfirumsjón með aðgangi og afgreiðslu. Tæknivörur hafa á undanförnum árum sjaldan kallað fram slíka viðbrögð hér á landi, en vinsældir Nintendo Switch línunnar og…

Lesa meira

Eftir mikla velgengni á PlayStation 5 verður hasarleikurinn Stellar Blade, sem þróaður er af suður-kóreska teyminu Shift Up, fáanlegur á PC þann 11. júní 2025. Leikurinn verður fáanlegur á bæði Steam og Epic Games Store og býður upp á fjölbreyttar tæknilegar endurbætur og nýtt efni sem miðar að því að nýta möguleika PC vettvangsins til fulls. PC útgáfan inniheldur nýtt efni, þar á meðal nýjan boss, Mann, 25 nýja búninga fyrir aðalpersónuna Eve og margt fleira. Þetta efni verður einnig aðgengilegt fyrir PS5 notendur í gegnum ókeypis uppfærslu. Fyrir þá sem vilja prófa leikinn fyrir útgáfu, er ókeypis demo nú…

Lesa meira

Í nýjasta fréttaþætti Tölvuleikjaspjallsins, þar sem þeir Arnór Steinn og Gunnar fara yfir fréttir mánaðarins úr heimi tölvuleikja, var fjallað um þrjú stór mál sem vöktu athygli leikjaáhugafólks: nýja James Bond leik í þróun hjá IO Interactive, væntanlega kvikmynd byggða á Elden Ring og áframhaldandi lokanir á leikjastúdíum hjá EA. „Það er ekki oft sem maður bíður í fjögur ár eftir trailernum – en þessi er þess virði,“ segir Gunnar í þættinum þegar þeir ræða um 007: First Light, þar sem IO Interactive – þekktust fyrir Hitman leikina – stíga inn í heim njósnara og martínídrykkju. Þeir telja stúdíóið hafa…

Lesa meira

PUBG-mótið sem fram fór sunnudaginn 1. júní var ótrúlega spennandi frá fyrstu byssukúlu til síðastu grenu. Mótið, sem markaði síðasta formlega viðburðinn í íslenska PUBG-samfélaginu fyrir sumarið, vakti mikla athygli og tóku 15 lið þátt af þeim 18 sem voru á upphaflegri skráningu. Margir höfðu orð á því að það væri miður að mótið væri komið inn á sumarið, þegar keppendur voru farnir að leggja áherslu á sumarfrí og önnur verkefni en að taka þátt í tölvuleikjakeppnum, sem varð til þess að ekki náðist að fylla mótið af liðum. OMNI sigraði með nýju blóði Það var lið OMNI sem stóð…

Lesa meira

EA Sports hefur opinberað fyrstu upplýsingar og sýnishorn úr væntanlegum leik sínum, EA Sports College Football 26, sem kemur út 10. júlí 2025 á PlayStation 5 og Xbox Series X/S. Leikurinn lofar að færa háskólafótboltaáhugamönnum enn raunverulegri og dýpri leikupplifun með margvíslegum nýjungum og endurbótum á leikkerfi og tæknilegri framkvæmd. Nýtt leikkerfi College Football 26 státar af yfir 2.700 nýjum leikkerfum sem dreifast á 10 nýjar tegundir. Þar að auki eru kynntir 84 nýir leikmannahæfileikar sem auka fjölbreytni og dýpt í leikstíl. Ein áhugaverðasta nýjungin er sú að leikmenn geta nú stjórnað þreytu og meiðslum í rauntíma, án þess að…

Lesa meira

Riot Games hefur kynnt nýja og langþráða viðbót við Valorant, endurspilunarkerfi sem mun gera leikmönnum kleift að endurskoða nýlega leiki sína, greina eigin frammistöðu og betrumbæta leikstíl sinn. Þetta er í fyrsta skipti sem Riot sýnir kerfið opinberlega, og var því gert skil í nýjustu myndbandi fyrirtækisins. Endurspilunarkerfið verður fyrst aðgengilegt á PC með útgáfu uppfærslu númer 11.06 í september 2025. Fyrir aðrar leikjatölvur, t.d. PlayStation, Xbox osfr. verður þó biðin örlítið lengri, þar sem Riot hefur gefið út að stuðningur fyrir þær verði tiltækur síðar á árinu. Kerfið leggur áherslu á rafíþróttakeppni (Competitive Mode), þar sem leikmenn geta skoðað…

Lesa meira

Menningar-, fjölmiðla- og íþróttaráðuneyti Bretlands (DCMS) hefur auglýst nýtt starf sem „Yfirmaður tölvuleikja og rafíþrótta“ (Head of Video Games and Esports). Þetta er hluti af viðleitni stjórnvalda til að styðja við og efla ört vaxandi tölvuleikja- og rafíþróttaiðnað landsins. Hlutverk og ábyrgð Starfið er staðsett í Manchester og býður upp á árslaun á bilinu £52.100 til £61.100, eða um það bil 9.169.600 til 10.753.600 íslenskar krónur. Um er að ræða tveggja ára samning með möguleika á sveigjanlegu vinnufyrirkomulagi. Umsóknarfrestur rennur út kl. 23:55 að breskum tíma sunnudaginn 15. júní 2025. (sjá nánar hér) Samkvæmt starfslýsingu felur hlutverkið í sér að:…

Lesa meira

Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen vakti athygli á nýju samstarfi Red Bull við rafíþróttaliðið Team Falcons þegar hann sýndi sig með sérmerktum treyju liðsins á Mónakó Grand Prix um síðastliðna helgi. Þetta samstarf markar nýjan kafla í stækkandi viðveru Red Bull í rafíþróttaheiminum. Team Falcons, sem stofnað var árið 2017 í Sádi-Arabíu, hefur vaxið hratt og keppir nú í mörgum greinum rafíþrótta, þar á meðal Counter-Strike 2, PUBG, Dota 2, Valorant og Apex Legends. Liðið hefur áður unnið með Red Bull, meðal annars þegar Falcons Vega sigraði á keppninni Instalock 2025 sem að Red Bull styrktu fyrr í maí. Samstarfið…

Lesa meira

Nintendo hefur vakið athygli með nýjustu aðgerðum sínum til að takmarka deilingu efnis úr auglýsingum sem birtast í eigin appi, Nintendo Today. Notendur hafa tekið eftir því að ekki er lengur hægt að taka skjáskot eða skjáupptökur af myndböndum innan appsins, þar á meðal kynningarefni fyrir væntanlegan leik, Donkey Kong Bananza, sem kemur út á Nintendo Switch 2, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Nintendo. Takmarkanir á deilingu efnis Þessi nýja stefna Nintendo hefur vakið furðu meðal aðdáenda og fjölmiðla, þar sem auglýsingarefni er almennt ætlað að vekja áhuga og hvetja til deilingar. Í stað þess að styðja…

Lesa meira