Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Alvöru ringulreið er í kortunum í kvöld þegar GameTíví-hópurinn mætir á golfvöllinn og reynir að klára 18 holur í Super Battle Golf. Eins og margir þekkja úr fyrri útsendingum má búast við dramatík, óvæntum sveiflum og kannski einhverjum „taktískum mistökum“ þegar pressan eykst með hverri holu. Leikurinn býður upp á hraða spilun og ófyrirsjáanlegar aðstæður, sem þýðir að eitt rangt högg getur breytt stöðunni á augabragði. Það verður því spennandi að sjá hver heldur haus og hver missir kúlið þegar líður á kvöldið. Útsending hefst í beinni klukkan 20.00 á www.twitch.tv/gametiviis þar sem áhorfendur geta fylgst með allri ringulreiðinni í…

Lesa meira

Viðtal við Seamus Blackley, einn af hönnuðum upprunalegu Xbox leikjatölvunnar, hefur vakið töluverðan titring í leikjaheiminum síðustu daga. Ummæli hans, sem birtust fyrst á GamesBeat, fóru á flug um netið þar sem fjölmiðlar og áhrifavaldar gripu tækifærið og slógu upp fyrirsögnum um meintan dauðadóm yfir Xbox. Tilefnið eru stjórnendaskipti hjá Microsoft. Phil Spencer lét af störfum, Sarah Bond yfirgaf fyrirtækið og Asha Sharma tók við sem forstjóri leikjasviðsins, á meðan Matt Booty var gerður að yfirmanni efnis- og leikjaþróunar. Að mati Seamus er þetta merki um að forstjóri Microsoft, Satya Nadella, hyggist leggja Xbox niður til að beina allri áherslu…

Lesa meira

CCP Games leitar að yfirhönnuði leikjahönnunar til að leiða og efla hönnunarteymi EVE Online, samræma vinnubrögð og tryggja markvissa þróun á leikjakerfum og spilun. Hér að neðan má sjá atvinnuauglýsinguna. Umsóknir skulu berast á ensku. What You’ll Do: Lead, mentor, and support senior designers, with a focus on growth, feedback, and long-term career development Improve team effectiveness by strengthening communication, collaboration, and clarity across disciplines Partner with the Game Design Director to evolve and uphold EVE Online’s design process Guide feature teams through exploration and development, encouraging a solution-oriented mindset while preserving momentum Foster a culture of empowerment, experimentation, and…

Lesa meira

Alvarleg villa í Counter-Strike 2 sem gerði leikmönnum kleift að „stöðva tímann“ hefur nú verið lagfærð af Valve. Um var að ræða kerfisgalla sem leyfði spilurum að afla sér nákvæmra upplýsinga um staðsetningu og hreyfingar andstæðinga án þess að setja sig í nokkra raunverulega hættu. Það var forritarinn Aquarius sem endurskapaði villuna og birti ítarlegt myndband á YouTube þar sem hann sýndi skref fyrir skref hvernig mætti misnota kerfið. Í myndbandinu, sem sjá má hér að neðan, sést hvernig hann virkjar tiltekna skipun, lítur fyrir horn og fær fullkomna yfirsýn yfir stöðuna án þess að sjást sjálfur. Að því loknu…

Lesa meira

Tölvuleikjaiðnaðurinn stendur ekki lengur í hefðbundnu leikjatölvustríði. Samkvæmt nýrri ársskýrslu fjárfestisins og greinandans Matthew Ball hefur víglínan færst yfir í það sem hann kallar athyglisstríð, þar sem leikir keppa ekki bara sín á milli heldur við veðmálaöpp, klámveitur, samfélagsmiðla og meme menningu um tíma og peninga neytenda. Í umfjöllun Kotaku kemur fram að leikjatölvumarkaðurinn hafi náð ákveðnu þaki. PC markaðurinn sé stærri en nokkru sinni fyrr en vöxturinn sé hægur. Sá vöxtur sem enn sé til staðar komi að stórum hluta frá Kína og leikjum á borð við Roblox. Á sama tíma eigi hefðbundin AAA stórverkefni sífellt erfiðara með að…

Lesa meira

Um árabil hefur Menntaskólinn á Tröllaskaga átt í farsælu og metnaðarfullu samstarfi við skólann New College Lanarkshire í Skotlandi. Samstarfið á rætur sínar að rekja til Ecomedia Evrópuráðstefnu í Rúmeníu árið 2016, þar sem kastljósinu var beint að upplýsingatækni í skólastarfi og nýsköpun í kennsluháttum. Í kjölfarið sóttu kennarar MTR ráðstefnu til kollega sinna í Skotlandi og síðar komu fulltrúar NCL til Íslands þegar sambærileg Evrópuráðstefna var haldin hjá MTR. Tengslin hafa því styrkst jafnt og þétt á vettvangi kennara og stjórnenda. Þegar aðstoðarskólameistara MTR og einum kennara var boðið að sækja ráðstefnu hjá NCL á síðasta ári kviknuðu nýjar…

Lesa meira

Það var kannski ekki sjálfgefið að leið Sigurvalda Kára Björnssonar færi inn í heim rafíþrótta. Hann hefur gegnt stöðu verkefnastjóra hjá Rafíþróttasamband Íslands og hefur komið að stórum verkefnum á borð við endurvakningu Skjálfta og uppbyggingu á stúdíó- og miðlunarstarfi sambandsins. En sagan hefst annars staðar. Sigurvaldi er 21 árs, fæddur og uppalinn í Bolungarvík en búsettur í Reykjavík. Þegar hann er ekki í vinnuhlutverki lýsir hann sér sem fjöllistamanni. Hann hefur starfað á vettvangi sviðslista og kvikmyndagerðar og segir skapandi störf eiga stóran þátt í lífi sínu. Hann ver mestum tíma með eiginkonu sinni og syni, en auk þess…

Lesa meira

Hörð barátta og mikill keppnisandi einkenndi DUO mótið í PUBG: Battlegrounds sem fram fór um helgina, þar sem leikið var í FPP samkvæmt opinberum esports reglum leiksins. Alls tóku 21 lið þátt og var ljóst frá fyrstu lotu að barist yrði um hvert einasta stig. Skráningargjaldið var 1.000 krónur á lið og rann það óskipt beint í vinningspottinn. Skipting verðlauna var skýr og einföld. Fyrsta sæti hlaut 50 prósent af heildarupphæðinni, annað sæti 30 prósent og þriðja sæti 20 prósent. Með 21 lið meðal keppenda varð heildarupphæðin vegleg og stigataflan tók stöðugum breytingum allan keppnistímann. Sigurvegarar mótsins voru Ryksugurnar, skipaðir…

Lesa meira

Sannkölluð StarCraft hátíð verður haldin laugardaginn 7. mars klukkan 13:00 á rafíþróttamiðstöðinni Next Level Gaming í Egilshöll. Aðgangur er ókeypis og tölvur staðarins verða opnar öllum aðdáendum StarCraft sem vilja taka þátt, hvort sem er í keppni eða til að spila sér til skemmtunar. Á dagskránni er stefnt að því að krýna Íslandsmeistara í bæði StarCraft: Brood War og StarCraft II. Sigurvegarar mótanna hljóta verðlaunabikar og þar með formlegan titil Íslandsmeistara. Keppni í StarCraft: Brood War hefst klukkan 13:00 með 1v1 móti. Keppt verður í tveimur styrkleikaflokkum, annars vegar Chobos og hins vegar Gosus. Sá sem sigrar Gosus flokkinn verður…

Lesa meira

Ríkisstjórn Sádi Arabíu hefur samþykkt að breyta nafni Esports World Cup Foundation, samtakanna sem standa að baki Esports World Cup og Esports Nations Cup. Eftir breytinguna mun stofnunin bera heitið Esports Foundation. Á fundi ríkisstjórnar Sádi Arabíu fyrr í vikunni var samþykkt að gera formlega breytingu á skipulagsskrá stofnunarinnar. Þar með var nafni hennar breytt úr Esports World Cup Foundation í Esports Foundation. Breytingin fór fram án mikillar umræðu og var aðeins einn liður í annasömum fundi þar sem fjöldi samkomulaga og verkefna, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, hlaut samþykki. Ekki liggur fyrir hvenær nýja heitið verður tekið formlega í…

Lesa meira