Þau lið sem eru ekki fullskipuð á lanmótið HR-ingurinn geta auglýst annað hvort á facebook síðu lanmótsins eða hér á Lan- og Onlinemót spjallsvæðið.
Adminar mótsins munu ekki aðstoða lið við að finna einstaklinga til þess að mynda fullskipað lið. Á setningardegi munu adminar mynda lið úr clanleysulistanum sem dæmi: 20 manns skráðir í CS = 4 lið.
Adminar munu ekki reyna að ráðstafa clanleysulista í ófullskipuð lið, en það er alfarið á ábyrgð liða að fylla liðið sitt. Ef að þú telur að liðið verði ekki fullskipað fyrir keppni getur þú leyst upp liðið, og allir í liðinu geta skráð sig á clanleysulista, segir í tilkynningu frá adminum HRingsins.
Ekki verður leyfilegt að skipta út, velja, hafna eða með neinu móti eiga við clanleysulið.
Ástæðan fyrir þessu er einfaldlega sú að adminar mótsins verða uppteknir við að sinna allt öðrum hlutum og eiga ekki að þurfa að vera að vesenast í því að koma mönnum í lið – það er á ykkar ábyrgð, segir að lokum í fréttatilkynningunni.
Til gamans má geta að CCP kemur til með að vera aðalstyrktaraðili Hringsins 2012.
Heimasíða lanmótsins: hringurinn.net
Myndir frá facebook síðu HR-ingsins