Close Menu
    Nýjar fréttir

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    1 2 3 … 350 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest og afmælisstemming þegar Major nálgast – Vídeó og IRL streymi
    Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest og afmælisstemming þegar Major nálgast
    Afmælisdrengurinn kveður úr herberginu og lofar að verða ekki of OP í IRL-streyminu í dag.
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest og afmælisstemming þegar Major nálgast – Vídeó og IRL streymi

    Chef-Jack11.12.2025Uppfært12.12.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest og afmælisstemming þegar Major nálgast
    Afmælisdrengurinn kveður úr herberginu og lofar að verða ekki of OP í IRL-streyminu í dag.

    Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest, þar sem CS2 Major 2025 fer brátt í gang, var bæði rólegur og skemmtilegur. Kassi átti afmæli og félagarnir ákváðu að nýta daginn í að kanna borgina áður en alvaran hefst á morgun (innskot: í dag) þegar mótið sjálft byrjar.

    Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest og afmælisstemming þegar Major nálgast
    Morgunmatur á hótelinu áður en dagur 2 fór almennilega í gang, kraftur í pylsum, eggjum og appelsínusafa.

    Dagurinn hófst á morgunverði á hótelinu, þar sem þeir reyndu að halda sig við áætlun en ákváðu svo að leggja leið sína að MVM Dome, keppnishöll CS2 Major 2025. Þar tóku þeir púlsinn á svæðinu og upplifðu stemninguna sem fer vaxandi þegar stutt er í að heimsmeistaramót Counter-Strike hefjist.

    MVM Dome í Búdapest, heimavöllur CS2 Major 2025 þar sem stemningin er rétt að byrja:

    https://esports.is/wp-content/uploads/2025/12/IMG_5378.mp4

    Þeir héldu síðan með neðanjarðarlest út að verslunarmiðstöðinni Shopmark þar sem Icenosi fjárfesti í lítilli myndavél, enda bannað að koma með stórar myndavélar inn á keppnissvæðið.

    Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest og afmælisstemming þegar Major nálgast
    Metro-vagninn sem skutlaði Icenosa og Kassa um borgina á leiðinni að MVM Dome og Shopmark.
    Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest og afmælisstemming þegar Major nálgast
    Mercatino Ristorante Enoteca í hátíðarskrúða, ítölsk jólastemning í miðri Búdapest fyrir afmæliskvöldið

    Eftir verslunarferðina tók við óvænt hlé þegar þeir skruppu aftur á hótelið, lögðust í rúmið til að hvíla sig augnablik og vöknuðu ekki fyrr en um fimmleytið. Ekki alveg samkvæmt plani, en ferðalög og stemning tekur stundum yfir stjórnina.

    Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest og afmælisstemming þegar Major nálgast
    Grillaður kolkrabbi á Mercatino Ristorante Enoteca, afmælisveisla Kassa tekin alla leið.
    Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest og afmælisstemming þegar Major nálgast
    Nautalund með grilluðu grænmeti og sósu, main hjá Kassa

    Um kvöldið áttu þeir bókað borð á Mercatino Ristorante Enoteca, flottum ítölskum veitingastað sem sló í gegn hjá þeim félögum. Þar ákváðu þeir líka að prófa IRL-streymið sitt, sem virkaði eins og í sögu. Áhorfendur fengu að fylgjast með öllu kvöldinu, bæði stemningunni í borginni og matarupplifuninni, þar til þeir sneru aftur á hótelið seint um kvöld.

    Sjá IRL-streymið hér

    Þar lauk degi númer tvö í ferðablogginu en stóra stundin rennur upp í dag. Major hefst 11. desember og Icenosi og Kassi ætla sér að vera vel úthvíldir áður en þeir stíga inn í hjarta mótsins. Daglegt IRL-streymi heldur áfram og lofar bæði innsýn á keppnissvæðinu og glaðbeittum ævintýrum á götum Búdapest.

    Smellið hér: Hér höldum við utan um allar frásagnir þeirra og uppfærslur.

    Myndir: aðsendar

    Icenosi Icenosi og Kassi á Major í Búdapest 2025 Íslenskt efni Kassi Major Búdapest 2025 picks
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.