
Dagur 2 hjá Icenosa og Kassa í Búdapest, þar sem CS2 Major 2025 fer brátt í gang, var bæði rólegur og skemmtilegur. Kassi átti afmæli og félagarnir ákváðu að nýta daginn í að kanna borgina áður en alvaran hefst á morgun (innskot: í dag) þegar mótið sjálft byrjar.

Dagurinn hófst á morgunverði á hótelinu, þar sem þeir reyndu að halda sig við áætlun en ákváðu svo að leggja leið sína að MVM Dome, keppnishöll CS2 Major 2025. Þar tóku þeir púlsinn á svæðinu og upplifðu stemninguna sem fer vaxandi þegar stutt er í að heimsmeistaramót Counter-Strike hefjist.
MVM Dome í Búdapest, heimavöllur CS2 Major 2025 þar sem stemningin er rétt að byrja:
Þeir héldu síðan með neðanjarðarlest út að verslunarmiðstöðinni Shopmark þar sem Icenosi fjárfesti í lítilli myndavél, enda bannað að koma með stórar myndavélar inn á keppnissvæðið.
Eftir verslunarferðina tók við óvænt hlé þegar þeir skruppu aftur á hótelið, lögðust í rúmið til að hvíla sig augnablik og vöknuðu ekki fyrr en um fimmleytið. Ekki alveg samkvæmt plani, en ferðalög og stemning tekur stundum yfir stjórnina.
Um kvöldið áttu þeir bókað borð á Mercatino Ristorante Enoteca, flottum ítölskum veitingastað sem sló í gegn hjá þeim félögum. Þar ákváðu þeir líka að prófa IRL-streymið sitt, sem virkaði eins og í sögu. Áhorfendur fengu að fylgjast með öllu kvöldinu, bæði stemningunni í borginni og matarupplifuninni, þar til þeir sneru aftur á hótelið seint um kvöld.
Sjá IRL-streymið hér
Þar lauk degi númer tvö í ferðablogginu en stóra stundin rennur upp í dag. Major hefst 11. desember og Icenosi og Kassi ætla sér að vera vel úthvíldir áður en þeir stíga inn í hjarta mótsins. Daglegt IRL-streymi heldur áfram og lofar bæði innsýn á keppnissvæðinu og glaðbeittum ævintýrum á götum Búdapest.
Smellið hér: Hér höldum við utan um allar frásagnir þeirra og uppfærslur.
Myndir: aðsendar







