
KIA deildin í League of Legends lauk formlega 15. nóvember eftir rúmar ellefu vikur af stanslausum átökum þar sem fjórtán lið börðust um toppsætið. Deildin hófst 3. september og fagnaði sterkri þátttöku með fimm manna byrjunarliðum og allt að þremur varamönnum hjá hverju liði, og tryggði þannig fjölbreytt og þétt mótaumhverfi.
Mótið var á vegum Rafíþróttasambands Íslands.
Næsta deild hefst 22. janúar 2026 og er þegar farið að gæta spennu þegar liðin undirbúa endurkomu sína.
Dusty átti mótið frá upphafi og endaði með því að yfirstíga bæði riðlakeppnina og úrslit með framgöngu sem má kalla nær óaðfinnanlega. Þeir töpuðu aðeins þremur leikjum allt haustið, einum gegn Cabo í riðlakeppninni og tveimur gegn Fenrir í lokaeinvíginu.
Á úrslitakvöldinu var spennan í hámarki. Fenrir náði yfirburðum í tveimur fyrstu leikjunum þar sem Mæja og Icelandic Hero drógu vagninn og báru þá leiki á herðum sér. Þau refsuðu öllum mistökum og gáfu Dusty engan séns á endurkomu.
Kvöldið hófst því með stöðunni 2–0 fyrir Fenrir.
Í þriðja leik fór þó að halla undan fæti. Það var eins og leikmenn Dusty hefðu loksins hitnað og fundið taktinn, því þeir náðu bæði betri fókus og sterkari samvinnu.
Það sem tryggði Dusty sigur í seríunni var framúrskarandi samspil, góð sjónvarsla (e. vision control) og sú staðreynd að liðið nýtti hver einustu mistök (e. misplay) andstæðinganna.
Eitt af eftirminnilegustu augnablikum úr seríunni var fjórfelling (quadra kill) sem Dofri náði í lokabardaga síðasta leiksins. Með þeirri frammistöðu innsiglaði hann sigur Dusty á hárréttum tíma.
Myndir úr sýningarleiknum á Skjálfta
Whisky Tango Foxtrot endaði í fjórða sæti í mótinu, en liðið hafði unnið alla sína leiki fram að sýningarleiknum gegn Fenrir þann 27. september.
„Á þeim tímapunkti vorum við enn að ljúka Round Robin umferðinni og átti Whisky eftir að spila formlega gegn bæði Fenrir og Dusty.“
Sagði Sara Helena í samtali við esports.is.
Cool Beans Team náði hins vegar að vinna sig upp úr fimmta sæti eftir allir-á-móti-öllum umferðinni og tryggði sér að lokum þriðja sætið. Hér má sjá efstu fimm liðin eftir Round Robin yfirferðina.
Eftirfarandi myndir, teknar af Söru Helenu, eru úr sýningarleik sem Fenrir og Whisky léku á Skjálfta viðburðinum sem fram fór í Digranesi í Kópavogi dagana 26. til 28. september.
Í keppninni um þriðja sætið áttust við lið sem bæði vildu enda tímabilið á jákvæðum nótum. Þar höfðu Cool Beans Team betur gegn Whiskey Tango Foxtrot og tryggðu sér bronsið eftir hörkuviðureign.
Tölfræðin frá tímabilinu vekur einnig athygli, en Jarvan IV og Wukong reyndust áhrifamestu hetjurnar í vali og útilokunum með 70 prósenta og 47 prósenta viðveru. Nánari tölfræði er að finna á opinni tölfræðisíðu mótsins hér, þar sem hægt er að kafa ofan í leikstíl liðanna og þróun tímabilsins.
Mótið fór fram með hefðbundnu fyrirkomulagi þar sem öll lið mættust einu sinni í riðlakeppninni. Efstu átta liðin komust áfram í úrslit þar sem 1. sæti mætti 8. sæti, 2. sæti mætti 7. og svo koll af kolli. Þar þurftu lið að vinna best af þremur til að halda áfram, og liðin sem töpuðu í undanúrslitum kepptu aðra viðureign um þriðja sætið.
Úrslitin réðust í einvígi sem spilað var í best af fimm og batt saman keppnistímabilið með þeim stórleik sem stuðningsmenn fengu í lokin. Yfirlit yfir alla leiki og uppsetningu brackets er að finna á keppnissíðu Challengermode hér.
Verðlaunin í KIA deildinni skiluðu sér í eftirfarandi lokaniðurstöðu.
Dusty tryggði sér fyrsta sætið og hlaut bikar ásamt 250 þúsund krónum í verðlaunafé. Í öðru sæti endaði Fenrir sem fékk 125 þúsund krónur og í þriðja sæti voru Cool Beans Team sem fékk 75 þúsund krónur.

Frá pentakill í fimmfellingu
Aðspurð um íslenskuna sem hefur smogið inn í útsendingar KIA deildarinnar, segir Sara Helena að hún hafi haft gaman af því að þróa eigið orðasafn fyrir leikinn:
„Ég hef verið að leika mér í frítímanum við að íslenska helstu frasa í League of Legends, og glöggir áhorfendur tóku eflaust eftir því að Ásgeir var með sérstaka „orðabók“ í hverri útsendingu.
Í rauninni er bókin einfaldlega listi yfir þau orð og hugtök sem ég hef þýtt, en lýsendurnir hafa verið einstaklega duglegir að tileinka sér íslenskuna og nota hana í lýsingum sínum á leikjunum.“
Myndband úr úrslitaleiknum
Sara Helena, einn af mótstjórnendum League of Legends hjá RÍSÍ, segir í samtali við esports.is að framganga liðanna í haust hafi sýnt vel hve samfélagið sé að vaxa og þroskast, bæði hvað varðar fagmennsku, skipulag og frammistöðu. Hún bendir einnig á að reglubók mótsins, hafi reynst mikilvægt verkfæri til að tryggja jafnræði og skýrt umhverfi fyrir öll lið.
„Allir sem komu að útsendingunum eiga hrós skilið. Róbert (Krabbi), Brimar (Broskallinn), Ásgeir (Mr. Man), Mist (mysterymyst) og Gunni (The Great Gonzo).
Það er einstaklega gaman að sjá samfélagið lifna á ný. Það er löngu kominn tími til að við sjáum aftur hágæða League of Legends spilun á Íslandi með almennilegri umgjörð og verðlaunum,“
sagði Sara Helena að lokum.
Nú horfa liðin fram á nýtt keppnistímabil og undirbúningur er hafinn. Ef fram heldur sem horfir má gera ráð fyrir að KIA deildin í janúar verði enn sterkari og samkeppnishæfari en áður.
Fleiri Twitch-móment úr úrslitunum
Efri klippan sýnir quadra killið sem innsiglaði leikinn og í þeirri neðri má sjá Mæju yfirspila Seif.







