Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Er þetta besta R6 lið allra tíma? FaZe með tvo titla í röð
    Er þetta besta R6 lið allra tíma? FaZe með tvo titla í röð
    Leikmenn FaZe Clan fagna sigri á Rainbow Six Invitational eftir að hafa varið heimsmeistaratitilinn og skrifað nýjan kafla í sögu Tom Clancy's Rainbow Six Siege.
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Er þetta besta R6 lið allra tíma? FaZe með tvo titla í röð

    Chef-Jack19.02.20262 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Er þetta besta R6 lið allra tíma? FaZe með tvo titla í röð
    Leikmenn FaZe Clan fagna sigri á Rainbow Six Invitational eftir að hafa varið heimsmeistaratitilinn og skrifað nýjan kafla í sögu Tom Clancy’s Rainbow Six Siege.

    FaZe Clan eru heimsmeistarar í Rainbow Six Siege annað árið í röð eftir sigur á Team Secret í úrslitaleik Rainbow Six Invitational 2026 sem fram fór á sunnudag síðastliðinn.  Með sigrinum verja þeir titilinn og festa sig enn frekar í sessi sem eitt sterkasta lið í sögu leiksins.

    Þetta er í fyrsta sinn í sögu Rainbow Six Siege sem lið tekst að verja Invitational titilinn. FaZe skrifa þar með nýjan kafla í sögubækurnar og hefja tímabilið 2026 á toppi heimslistans.

    HISTORY HAS BEEN FORGED🔨@FaZeEsports CLAIM THEIR SECOND HAMMER pic.twitter.com/yY5qgFNWIL

    — Rainbow Six Esports (@R6esports) February 15, 2026

    Úrslitaleikurinn bar þess skýr merki að FaZe voru í fantaformi. Liðið fór taplaust í gegnum úrslitakeppnina og hélt dampi alla leið í lokaeinvígið. Þeir sýndu yfirvegun bæði í sókn og vörn, náðu snemma yfirhöndinni í lotum og nýttu yfirburðastöðu af öryggi.

    Fyrstu tvö borðin fóru nokkuð þægilega til FaZe, en á þriðja borðinu, Fortress, náði Team Secret að halda sér inni í einvíginu með 11–9 sigri í hörkuspennandi viðureign. Á fjórða og síðasta borðinu, Border, reyndust FaZe hins vegar sterkari og lokuðu seríunni með 10–8 sigri.

    The greatest team of all time?@FaZeEsports have lifted yet ANOTHER hammer 🔨 pic.twitter.com/wLXTM0gLQW

    — Rainbow Six Esports (@R6esports) February 15, 2026

    Leið FaZe að titlinum var sannfærandi. Í útsláttarkeppninni lögðu þeir meðal annars Fluxo w7m, Wildcard og Team Falcons á leið sinni í úrslitin. Þeir forðuðust neðri hluta keppninnar alfarið, þó w7m hafi veitt þeim harða keppni í fjórðungsúrslitum þar sem allar þrjár viðureignir voru jafnar.

    Með tveimur heimsmeistaratitlum í röð styrkir FaZe ekki aðeins eigin stöðu heldur undirstrikar áframhaldandi yfirburði Brasilíu á heimsvísu í Rainbow Six Siege. Þessi árangur setur liðið í allra efstu hillu í sögu Invitational mótsins og staðfestir að við erum mögulega að horfa á eitt besta lið allra tíma í leiknum.

    Ljósmynd: Ubisoft.

    FaZe Clan Fluxo w7m Rainbow Six Siege Team Falcons Wildcard
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.