Fyrsta mót GameTíví deildarinnar 2026 í PUBG: Battlegrounds fer fram sunnudaginn 18. janúar og hefst klukkan 20:00. Keppt verður í FPP og kvöldið keyrt samkvæmt hefðbundnu keppnisfyrirkomulagi sem ætti að vera kunnugt þeim sem fylgst hafa með deildinni undanfarin ár.
Mótið markar upphaf deildarkeppni tímabilsins sem samanstendur af alls fimm mótum. Lið safna stigum yfir tímabilið en hvert mótskvöld telst engu að síður sem sjálfstæð keppni. Þátttaka er því sveigjanleg og engin krafa gerð um að lið taki þátt í öllum mótum deildarinnar.
Deildarkeppnin fer fram 18. janúar, 8. febrúar, 1. mars, 22. mars og 12. apríl. Að lokinni deildarkeppni tryggja efstu 16 lið sér sæti í úrslitakeppni og Íslandsmeistaramóti tímabilsins.
Íslandsmeistaramótið sjálft verður haldið í tveimur hlutum, 3. maí og 10. maí, þar sem Íslandsmeistarar 2026 verða krýndir eftir úrslitaviðureignir bestu liða tímabilsins.
Alls hafa 14 lið þegar skráð sig til leiks en skráning er enn opin fyrir lið sem vilja taka þátt í deildarkeppninni.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins eða á Facebook-síðu Íslenska PUBG samfélagsins.
ynd: facebook / Íslenska PUBG samfélagið



