
Annað mót tímabilsins í GameTíví-deildinni fer fram sunnudaginn 8. febrúar og hefst klukkan 20:00. Spilað verður í FPP og kvöldið keyrt í fullu keppnisfyrirkomulagi, með allt sem því fylgir. Þetta er mót númer tvö af fimm á tímabilinu og þar er ekkert verið að bíða eftir neinum. Það er bara að mæta og spila.
Hvert mót er sjálfstæð keppni, þannig að engin skuldbinding fylgir þátttöku. Samhliða safna lið stigum í deildinni og það er alls ekki of seint að hefja sitt stigaclutch núna. Efstu sextán lið tímabilsins tryggja sér sæti í úrslitum og berjast áfram um sæti á Íslandsmeistaramótinu.
Ný lið eru hjartanlega velkomin og sömuleiðis þau sem hafa verið lengur í þessu. Hvort sem þú ert að mæta með nýtt lineup eða vel slípað squad, þá er þetta kvöldið til að droppa heitt og sjá hvað gerist.
Nánari upplýsingar á heimasíðu deildarinnar hér.



