130 manns eru mættir til að keppa í leikjunum Counter Strike 1.6, League of Legends og Starcraft 2 á lanmóti HR-ings og er góð stemming í húsinu. Keppni á fyrsta degi lauk í gærkvöldi klukkan 00:00 og hófst aftur núna klukkan 12:00 á hádegi.
„Sýnt verður frá League of Legends og Starcraft 2 streamum í fyrirlestrasölum í Háskólanum í Reykjavík, sjoppa á svæðinu, Dust 514 verður spilanlegur á PS3 vélum frá CCP og Senu á fyrstu hæðinni og Red Bull verður með kynningu, allt þetta á Laugardeginum“, sagði Stefán einn af admin´s í samtali við eSports.is.
Vekjum athygli á live stream frá lanmótinu af leikjunum League of Legends og Starcraft 2 hér.
Mynd af facebook síðu HR-ings.