Heim / PC leikir / Hver verður með nördalegasta flúrið? Kosning hafin
Hverju viltu fylgjast með?  Þitt er valið

Hver verður með nördalegasta flúrið? Kosning hafin

Þá er kosningin um nördalegasta flúrið hafin á facebook síðu Nörd Norðursins og bárust hvorki meira né minna en 57 flúr í keppnina frá 38 þátttakendum, glæsilegt það.

Núna þurfa keppendur að fá sem flest like á myndina sína og það flúr sem er með flest like þann kl 23:59 þann 29. mars sigrar keppnina.

Í 1. sæti er 25.000 kr. inneign upp í flúr hjá Bleksmiðjunni.

Mynd í 2. sæti er í vali dómnefndar sem samanstendur af Nörd Norðursins starfsmönnum og Bleksmiðjunnar og fær sigurvegarinn 10.000 kr. inneign upp í flúr hjá Bleksmiðjunni.

Smellið hér til að skoða herlegheitin.

 

Mynd: Skjáskot af myndasafni Nörd Norðursins á facebook.

Um Chef-Jack

Chef-Jack er matreiðslumaður að mennt og hefur verið með pennann á lofti til fjölda ára og skrifað mikið um tölvuleiki og allt sem snýr að Íslensku tölvuleikjasamfélaginu. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara