Íslenska tónlistarkonan Laufey er á leið inn í tölvuleikinn Fortnite þar sem hún verður aðalnúmer í næstu seríu af Fortnite Festival.
Epic Games staðfesti um helgina að Laufey muni taka við keflinu af Chappell Roan sem „headline act“ í seríu 14 af tónlistarhluta leiksins. Tilkynningin kom fram í léttu kynningarmyndbandi þar sem Laufey prófar búninga með hjálp Fortnite-karaktersins Peely.
besties: @laufey 🤝 Peely
4.16 pic.twitter.com/vQhgZfhTsi
— Fortnite (@Fortnite) April 12, 2026
Samstarfið fer í loftið þann 16. apríl og þó ekki hafi verið greint frá öllum smáatriðum má búast við hefðbundnu Festival-innihaldi. Þar falla venjulega undir sérstök „skins“, emote, fylgihlutir og valin lög listamannsins sem spilast í leiknum.
Fortnite Festival hefur á skömmum tíma orðið vettvangur fyrir stór nöfn úr tónlistarheiminum, og innkoma Laufeyjar sýnir vel hversu vítt leikurinn nær í dag. Fyrir Fortnite-spilara þýðir þetta einfaldlega eitt, nýtt tímabil með íslenskum jazz-poppi beint inn í leikinn.
Myndir: skjáskot úr myndbandi







