
Leikjaspilarar sem eru að leita að nýrri upplifun í Minecraft þurfa ekki að leita lengra. Nýr íslenskur Cobblemon server hefur nú verið opnaður, þar sem spilurum býðst að stíga inn í heim sem sameinar klassískt Minecraft og Pokémon.
Serverinn er búinn fjölbreyttum mods og datapacks sem bæta við miklu magni af efni. Þar má finna gym, raids, þjálfara og fjölbreytt verkefni sem halda spilurum við efnið, hvort sem þeir kjósa að keppa sín á milli eða vinna saman að sameiginlegum markmiðum.

Áhersla er lögð á opið og vinalegt samfélag þar sem allir eru velkomnir. Spilarar geta valið sér eigin leikstíl, hvort sem það felst í að safna Pokémonum, taka þátt í PvP bardögum eða einfaldlega slaka á og spila með vinum.
Áhugasamir geta nálgast frekari upplýsingar og gengið í samfélagið í gegnum Discord.



