Team Fortress 2 heldur áfram að sýna að leikurinn lifir og hrærist með samfélaginu. Nú stendur til að blása til Jump World Cup, stærsta stökkveisla sem hefur verið haldið í sögunni. Þar munu sextán bestu stökkvarar heimsins takast á í fjögurra manna liðum sem tákna heilu heimsálfurnar. Keppt verður bæði í Soldier og Demoman flokknum á fjórtán sérhönnuðum kortum.
Mótið fer fram laugardaginn 27. september klukkan 13:00 að íslenskum tíma og verður í beinni á EssentialsTF Twitch-rásinni. Verðlaunapotturinn er rúmlega 5.000 bandaríkjadalir, eða um 700.000 íslenskar krónur, og keppa liðin um hinn eftirsótta titil: „Best Continent“.
Áhorfendur geta einnig átt möguleika á vinningum meðan á beinni útsendingu stendur, þannig að það borgar sig að fylgjast með. Þeir sem vilja vita meira geta fundið frekari upplýsingar á Jump Fortress Discord-þjóninum.
Þetta verður stærsta lifandi stökkveisla sem TF2 hefur nokkru sinni séð, sannkallaður viðburður fyrir harða aðdáendur leikjarins.
Myndir: skjáskot úr myndbandi






