Stjórnendateymi CCP Games hefur náð samkomulagi um kaup á félaginu af suðurkóreska leikjaframleiðandanum Pearl Abyss fyrir um 120 milljónir dala, jafnvirði nærri 15 milljarða króna. Frá þessu greinir Viðskiptablaðið og vísar meðal annars í kóreska miðilinn Inven Global.
Gert er ráð fyrir að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri og einn stofnenda CCP, leiði kaupin. Með þeim færist eignarhaldið aftur til stjórnenda félagsins eftir að Pearl Abyss keypti CCP árið 2018 í einni stærstu fyrirtækjasölu íslensks viðskiptalífs.
Samkvæmt umfjöllun Inven Global telja forsvarsmenn beggja félaga að þessi leið styrki samkeppnisstöðu þeirra til lengri tíma. Talsmaður Pearl Abyss segir að hagkvæmast hafi verið að stjórnendateymi CCP tæki við eignarhaldinu, þó samstarf félaganna geti haldið áfram í einhverri mynd.
Þá kemur fram að rekstrartap CCP á undanförnum árum hafi haft áhrif á fjárhag Pearl Abyss, og að kaupverðið nú endurspegli breyttar markaðsaðstæður og rekstrarforsendur í alþjóðlegum tölvuleikjaiðnaði.
Myndir: eveonline.com





