
KRAFTON mun mæta með veglega og metnaðarfulla dagskrá á Gamescom 2025, sem fer fram í Köln í Þýskalandi dagana 20.–24. ágúst. Viðburðurinn fer fram í sýningarhöllinni Koelnmesse og hefur á undanförnum árum dregið að sér hundruð þúsunda gesta á staðnum og milljónir áhorfenda í streymi víða um heim.
Í fréttatilkynningu frá KRAFTON, útgefanda hinna margverðlaunuðu leikja PUBG: BATTLEGROUNDS og inZOI, kemur fram að fyrirtækið hyggst kynna helstu leikjatitla sína, halda viðburði og bjóða gestum að taka þátt í fjölbreyttum upplifunum á Gamescom.
Á sýningarsvæði Krafton í Hall 7 verður boðið upp á þrjá titla, PUBG: BATTLEGROUNDS, inZOI og PUBG: Blindspot, sérstakar kynningar og einstaka viðurkenningar fyrir þátttakendur. Gestir geta heimsótt tvö þemasvæði – inZOI Zone og PUBG Zone.
inZOI Zone
Á inZOI Zone verður kynning á nýrri viðbót leiksins, Cahaya, sem leikur á hitabeltisstemningu með suðrænum eyjum og litríkum umhverfum. Þar að auki verður Mac útgáfa inZOI kynnt formlega þann 20. ágúst, samhliða opnun Gamescom.
Á PUBG Zone verða tveir leikjatitlar í sviðsljósinu:
PUBG: BATTLEGROUNDS, upprunalegi titillinn, fær sinn eigin leikjasal þar sem þátttakendur geta tekið þátt í myndatökum, skotkeppni, og 1v1 einvígi svo fátt eitt sé nefnt.
PUBG: Blindspot, glænýr leikur sem enn er í þróun, verður í boði til prufu. Þeir sem óska eftir leiknum á Steam og ganga í Discord-rásina fá að launum takmarkaðan varning.
Þeir sem taka þátt í öllum þessum viðburðum fá sérhannaðan PUBG-glaðning með sér heim.
Á laugardeginum 23. ágúst heldur KRAFTON tvo helstu viðburði sína á sýningunni:
inZOI Meetup – fyrsti viðburðurinn sem sérstaklega er ætlaður aðdáendum inZOI. Þar fer fram spurt og svarað með þróunarteyminu, léttur spurningaleikur og myndatökur með gestum.
PUBG Hot Drop Cologne 2025 – viðburður helgaður PUBG þar sem boðið verður upp á leiki, viðtöl við þróunarteymi og þátttöku gesta í sviðssettri spilun.
Kynningarmyndband
Hér að neðan má horfa á kynningarmyndbandið frá Krafton fyrir sýninguna:
Myndir aðsendar.





