Close Menu
    Nýjar fréttir

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    1 2 3 … 350 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Leikjarýni»Leikjarýni: Nýr tower defense-leikur í teiknimyndastíl og spennandi sögu: Get Them Home!
    Leikjarýni: Nýr tower defense-leikur í teiknimyndastíl og spennandi sögu: Get Them Home! - Fáðu frían lykil - Xenobreakers
    Leikjarýni

    Leikjarýni: Nýr tower defense-leikur í teiknimyndastíl og spennandi sögu: Get Them Home!

    Chef-Jack26.04.2025Uppfært22.07.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Leikjarýni: Nýr tower defense-leikur í teiknimyndastíl og spennandi sögu: Get Them Home! - Fáðu frían lykil - Xenobreakers
    Leikjarýni: Nýr tower defense-leikur í teiknimyndastíl og spennandi sögu: Get Them Home! - Fáðu frían lykil - Xenobreakers

    Xenobreakers er nýr tower defense-leikur, en þar stíga spilarar inn í hættulegan og fjandsamlegan heim þar sem markmiðið er að stjórna för hermanna yfir eyðimerkursvæði þar sem hættur leynast við hvert fótmál.  Leikurinn sameinar taktíska spennu, áhrifamikla og sjónræna framsetningu og góða sögu í gegnum handteiknaðar myndasíður sem draga upp ferðalag hetjunnar Billy og áhafnar hans.

    Sögusviðið er plánetan Kernas, þar sem geimskipið Lockwood hefur hrapað eftir að hafa verið skotið niður. Áhöfnin er einangruð og í stöðugri hættu vegna árása frá risabjöllum, vélmenna og öðrum hættulegum óvinum. Spilarar taka að sér hlutverk varnaraðila og hafa heimild til að nýta háþróað turnakerfi og sérhæfða hæfileika til að tryggja að enginn verði skilinn eftir.

    Skemmtileg uppbygging og fjölbreytt leikflæði

    Xenobreakers

    Leikurinn skiptist í 16 leikstig sem leiða spilara um fjögur ólík vistkerfi – hvert með sínum sérkennum og hættum. Í gegnum leikinn mætir þú yfir 30 tegundum óvina, sem hver um sig býr yfir sínum eigin hæfileikum og hegðunarmynstri, þar á meðal þrír öflugir boss-ar sem krefjast nákvæmrar og úthugsaðrar varnaráætlunar.

    Spilarar hafa til umráða 5 grunnturna, sem hægt er að uppfæra frá MK I til MK III, hver með sín sérstöðu og uppfæranlegum eiginleika. Til viðbótar koma 4 virki sem spilarar geta kallað fram á lykilstundu og styrkt vörnina enn frekar.

    Hæfileikakerfi og gagnabanki

    Xenobreakers

    Leikurinn býður upp á  sveigjanlega spilun með 48 hæfileikum sem verða aðgengilegir eftir því sem spilunin þróast og opnast með því að safna medalíum fyrir frammistöðu í leikstigum.  Þannig geta spilarar sérsniðið bæði hæfileika og turnana sjálfa að sínum leikstíl – og endurstillt allt kerfið ef ný nálgun reynist betri.

    Leikjarýni: Nýr tower defense-leikur í teiknimyndastíl og spennandi sögu: Get Them Home! - Fáðu frían lykil - Xenobreakers

    Í gagnabanka leiksins safnast upplýsingar um óvini, eiginleika þeirra og styrkleika, sem auðveldar spilurum að greina hættur og móta skýrar varnarleiðir í komandi bardögum. Þar er einnig að finna 12 blaðsíðna handteiknaða myndasögu, sem sýnir ferðalag Billy og hópsins í gegnum heljarinnar aðstæður, og hægt er að skoða aftur og aftur.

    Tónlist, viðmót og snjall leikhönnun

    Tónlistin í leiknum er fínleg og þjónar stemningunni vel, hún er aldrei íþyngjandi en heldur spennunni við líði. Viðmótið sjálft er einfalt í notkun og notandavænt, og hægt er að sérsníða liti og útlit þess eftir eigin smekk.

    Inngönguleiðir óvinanna fjölga jafnt og þétt, sem heldur spilurum á tánum, og áður en næsta bylgja hefst fær spilarinn tíma til að virkja öflugar varnir á borð við Orbital Laser eða Auto Turret. Þessi dýnamík eykur stjórn spilarans á framvindu leiksins og býður upp á tækifæri til að endurskipuleggja varnirnar áður en næsta bylgja skellur á.

    Tilkynningar um nýjar tegundir óvina eru skýrar og gagnlegar, með upplýsingum um hraða, heilsustig og árásargetu viðkomandi óvinar.  Skemmtilegur fítus eru engispretturnar, sem hoppa yfir hermennina en eru síðan teknar niður með leysigeislum eða Mortar-turnum – góð dæmi um hvernig leikurinn brýtur upp fyrirsjáanleika og heldur leikmönnum vakandi.

    Lokaorð: Frumleg og vel útfærð blanda af stefnu og sköpun

    Leikjarýni: Nýr tower defense-leikur í teiknimyndastíl og spennandi sögu: Get Them Home! - Fáðu frían lykil - Xenobreakers

    Leikurinn Xenobreakers er bæði glæsilegur og krefjandi, leikur sem sameinar aðgengi við dýpt, og einfaldleika við taktíska fjölbreytni. Hvort sem þú ert nýr í tower defense leikjum eða reyndur spilari sem leitar að ferskri upplifun, þá hefur þessi leikur margt fram að færa.

    Mælum með þessum leik sem hægt er að skoða nánar á Steam með því að smella hér.

    Ég fékk leikinn án endurgjalds gegnum Keymailer.co. Rýnin er byggð á minni eigin reynslu og birting hennar er án utanaðkomandi áhrifa.

    Keymailer Leikjarýni Leikjarýni - eSports.is Xenobreakers
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Íslenska Gran Turismo Samfélagið fagnaði tímabilinu á lokahófi í Hafnarfirði

    09.05.2026

    Kaupa CCP fyrir nærri 15 milljarða

    04.05.2026

    Microsoft slær á Xbox orðróm

    22.04.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans
      Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans
      29.05.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.