Close Menu
    Nýjar fréttir

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Leikjarýni»Leikjarýni: Run Pizza Run – Hraði, hætta og heit pizza
    Leikjarýni: Run Pizza Run – Hraði, hætta og heit pizza
    Leikjarýni

    Leikjarýni: Run Pizza Run – Hraði, hætta og heit pizza

    Chef-Jack26.06.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Leikjarýni: Run Pizza Run – Hraði, hætta og heit pizza

    Hversu lengi hefur þú beðið eftir djúsí og nýbakaðri pizzu?

    Í Run Pizza Run ertu kominn í hlutverk pizzusendils, sem tekst á við ekki bara hungraða viðskiptavini heldur lífshættulega borgarumferð. Leikurinn býður upp á geðveikan hraða, adrenalín og furðulega ávanabindandi upplifun – allt í þágu þess að afhenda pizzur áður en þær kólna.

    Þetta er ekki bara leikur – þetta er kapphlaup við tímann, við umferðina og við sjálfan þig. Verkefnið er einfalt: hlaupa, víkja fyrir bílum sem ærast um göturnar á yfir 500 km hraða (já, þú last rétt), og koma pizzunni í hendurnar á réttum aðila áður en borgin gleypir þig. Aðstæður eru brjálæðislegar, hættur leynast á hverju horni og afhenda pizzabox er lífsreynsla út af fyrir sig.

    Sem leikur sem krefst skjótleika, einbeitingar og útsjónarsemi, nær Run Pizza Run að halda manni á tánum — þó ekki endilega lengi í senn. Eftir tæplega 100 klukkustundir í leiknum get ég vottað að þetta er tryllt skemmtun, en ekki án galla.

    Leikjarýni: Run Pizza Run – Hraði, hætta og heit pizza

    Leikurinn er brjálæðislega hraður, með litlum möguleikum á skipulagningu eða hernaðaráætlun. Bílar þjóta framhjá á ofboðslegum hraða, springa og fljúga með látum út um allt — og ef þú ert ekki á varðbergi, þá endar þú undir einum þeirra.

    Leikjarýni: Run Pizza Run – Hraði, hætta og heit pizza

    Fyrsta áskorunin er að sækja pizzurnar, og síðan að finna leiðina yfir göturnar til viðskiptavina, þar sem hvert skref getur orðið þitt síðasta.

    Grafíkin er einföld, jafnvel svolítið hrá, og „sensitivity“ var það lægsta sem ég gat stillt — en samt hefði mátt vera lægra. Hreyfingar pizzusendil eru of viðkvæmar, sem gerir það erfitt að stjórna hreyfingum nákvæmlega í þessu óreiðukerfi borgarinnar.

    Leikjarýni: Run Pizza Run – Hraði, hætta og heit pizza

    Leikurinn er fyndinn og kaótískur, þar sem uppfærslur og ný markmið halda manni við efnið — svo lengi sem þolinmæðin endist. Það má eiginlega líkja honum við Frogger á sterum – nema þú ert með pizzur og borgarstríð í kringum þig.

    Run Pizza Run er ákveðin sprengja af adrenalíni, og getur veitt skammtímaskemmtun fyrir þá sem elska æsispennandi hlaupaleiki með „arcade“ fíling. Þetta er hvorki tæknilegt meistaraverk né sjónræn veisla – en sem brjálæðislegt „pick-up-and-play“ leikur er það alls ekki síðra.

    Ef þú ert tilbúinn í hraða, óreiðu og pöntun númer 13 með pepperóní og hættuástandi, þá er þessi leikur kannski akkúrat fyrir þig.

    Leikurinn kom út 27. febrúar í fyrra og er fáanlegur á Steam.

    Leikjarýni: Run Pizza Run – Hraði, hætta og heit pizza

    Ég fékk leikinn án endurgjalds.  Rýnin er byggð á minni eigin reynslu og birting hennar er án utanaðkomandi áhrifa.  Gif mynd er frá leikjahönnuði.

    Myndir: skjáskot úr leiknum

    Samantekt

    60%
    60%
    Dómur

    Leikurinn er fyndinn og kaótískur, þar sem uppfærslur og ný markmið halda manni við efnið — svo lengi sem þolinmæðin endist. Það má eiginlega líkja honum við Frogger á sterum – nema þú ert með pizzur og borgarstríð í kringum þig.

    Run Pizza Run er ákveðin sprengja af adrenalíni, og getur veitt skammtímaskemmtun fyrir þá sem elska æsispennandi hlaupaleiki með „arcade“ fíling. Þetta er hvorki tæknilegt meistaraverk né sjónræn veisla – en sem brjálæðislegt „pick-up-and-play“ leikur er það alls ekki síðra.

    Ef þú ert tilbúinn í hraða, óreiðu og pöntun númer 13 með pepperóní og hættuástandi, þá er þessi leikur kannski akkúrat fyrir þig.

    Kostir
    1. Viðmót ágætt en hrátt
    Gallar
    1. Góð hugmynd, misgóð útfærsla
    • Einkunn
      6

    Keymailer Leikjarýni - eSports.is PC leikur picks Run Pizza Run
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi
      Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár
      14.06.2026
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Rafíþróttasamband Íslands - RÍSÍ - Logo
      Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli
      16.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.