
Riot Games var oft ranglega skrifað eða borið fram sem „Rito“ af leikmönnum, sérstaklega í netmenningu og umræðum á fyrstu árum fyrirtækisins. Í stað þess að leiðrétta þetta tóku starfsmenn Riot grínið upp á arma sína og fóru sjálfir að nota „Rito“ í gamni, bæði í leikjum, skilaboðum og jafnvel á skiltum og gjöfum.
Reynslumikill framleiðandi úr herbúðum World of Warcraft hefur gengið til liðs við Riot Games og mun koma að þróun nýs MMO-leiks Riot Games, sem lítið hefur verið opinberað um.
Um er að ræða Raymond Bartos, sem hefur gegnt hlutverki framleiðanda hjá World of Warcraft teyminu og tilkynnti um nýtt starf sitt í færslu á x.com.
Í færslu sinni lýsir Bartos mikilli ánægju með fyrstu kynni sín af Riot Games og segir gildi fyrirtækisins hafa skinið skýrt í gegn strax í viðtalsferlinu. Hann nefnir sérstaklega virðingu, umhyggju og mannleg samskipti sem lykilþætti í menningu Riot og segist hlakka til að leggja sitt af mörkum við að skapa MMO-upplifun sem leikmenn geti notið til fulls.
I’m incredibly excited to be joining @riotgames on the MMO team!!!
From my very first conversation with Riot, I immediately gravitated toward their values—and I was genuinely impressed by how clearly those values showed up throughout the interview process. It made it obvious… pic.twitter.com/Sap1O7CQeo
— GoodGuyRay ❤️ (@RaymondBartos) January 15, 2026
Bartos var hluti af teyminu sem skilaði af sér vinsæla Plunderstorm í World of Warcraft, auk fjölda tímabundinna remix-viðburða og 20 ára afmælishátíðar leiksins. Hann greinir jafnframt frá því að hann muni starfa náið með Orlando Salvatore, öðrum fyrrverandi lykilstarfsmanni World of Warcraft, sem gekk til liðs við Riot Games undir lok síðasta árs.
Undanfarin ár hefur fjöldi fyrrverandi Blizzard-verktaka safnast saman í kringum MMO-verkefni Riot Games. Þar á meðal er Natalia Leenhardt, sem starfaði hjá Blizzard í ellefu ár áður en hún gekk til liðs við Amazon Game Studios og síðar Riot. Þá hóf Kevin Carter störf hjá Riot árið 2017 eftir meira en áratug hjá Blizzard. Einnig má nefna Greg Street, fyrrverandi framkvæmdaframleiðanda MMO-verkefnisins og einn þekktasta hönnuð World of Warcraft, sem kvaddi Riot árið 2023.

Þrátt fyrir þennan mikla mannafla er lítið vitað opinberlega um MMO-leik Riot Games. Vitað er að hann gerist í heimi Runeterra, sama alheimi og margir aðrir leikir fyrirtækisins. Verkefnið hefur áður farið í gegnum endurskilgreiningu á stefnu og umfjöllun um leikinn hefur verið afar takmörkuð. Helst má nefna viðtal frá árinu 2023 við Necrit, þekktan fræðimann um sögu League of Legends, sem gaf örlitla innsýn í stöðu verkefnisins.
Engar upplýsingar hafa enn komið fram um hvenær leikurinn verður kynntur formlega eða hvenær hann gæti litið dagsins ljós. Samfelld ráðning reynslumikils starfsfólks bendir þó til þess að þróunin sé komin á alvarlegt stig og að Riot Games leggi ríka áherslu á að móta sterkan keppinaut á MMO-markaðnum til framtíðar.
Myndir: x.com / @RaymondBartos



