Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    Chef-Jack23.06.20262 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
    Þuríður Björg Guðnadóttir og Jökull Jóhannsson handsala framlengingu samstarfssamnings Ljósleiðarans og Rafíþróttasambands Íslands.

    Ljósleiðarinn og Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) hafa framlengt samstarfssamning sinn um áframhaldandi stuðning við efstu deild Counter-Strike á Íslandi og verður Ljósleiðarinn því áfram aðalstyrktaraðili deildarinnar sem ber nafnið Ljósleiðaradeildin.

    Samstarf Ljósleiðarans og RÍSÍ hefur staðið um árabil og Ljósleiðarinn hefur stoltur átt þátt í að styðja við uppbyggingu og vöxt rafíþrótta á Íslandi.

    „Við hjá Ljósleiðaranum erum afar ánægð með að halda áfram þessu öfluga samstarfi við RÍSÍ. Rafíþróttir halda áfram að vaxa hratt og eru orðnar mikilvægur hluti af afþreyingu og samfélagi ungs fólks.

    Sem fyrirtæki sem byggir upp örugga innviði fyrir stafræna framtíð Íslands teljum við mikilvægt að styðja við þau samfélög sem byggja á tækni og öruggum tengingum,“

    segir Þuríður Björg Guðnadóttir, framkvæmdastýra Ljósleiðarans.

    Með framlengingu samningsins verður unnið að því að efla umgjörð Ljósleiðaradeildarinnar enn frekar, auka sýnileika rafíþrótta og skapa fleiri tækifæri fyrir íslenska keppendur til að þróast og vaxa innan greinarinnar.

    „Við erum stolt af því að nafn Ljósleiðarans sé áfram tengt deild sem hefur orðið að mikilvægu flaggskipi rafíþrótta á Íslandi.

    Við hlökkum til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar og þeim spennandi keppnum sem framundan eru,“

    bætir Þuríður við.

    Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, segir um áframhaldandi samstarf:

    „Ljósleiðarinn hefur verið lykilsamstarfsaðili RÍSÍ um árabil og gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu rafíþrótta á Íslandi. Samstarfið hefur meðal annars lagt grunn að uppbyggingu Ljósleiðaradeildarinnar sem er í dag stærsta rafíþróttadeild landsins og jafnframt stuðlað að faglegri þróun greinarinnar í heild.

    Með skýrri samfélagslegri ábyrgð hefur Ljósleiðarinn lagt sitt af mörkum til að skapa fleiri tækifæri fyrir börn og ungmenni til að taka þátt í skipulögðu, uppbyggilegu og aðgengilegu rafíþróttastarfi um land allt.

    Við hlökkum mikið til að halda samstarfinu áfram með Ljósleiðaranum og vinna saman að því að efla enn frekar heilbrigt og jákvætt samfélag í kringum rafíþróttir á Íslandi.“

    Mynd: Rafíþróttasambands Íslands

    Jökull „Kaldi“ Jóhannsson Ljósleiðaradeildin Ljósleiðarinn Rafíþróttasamband Íslands
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.