
Orðrómur um næstu Xbox-leikjatölvu hefur verið á miklu flugi undanfarið. Vélin gengur undir vinnuheitinu Project Helix, en lítið hefur verið staðfest opinberlega hingað til.
Nýlega fór af stað umræða um að Microsoft hygðist mögulega ekki framleiða tölvuna sjálft, heldur selja tæknina til annarra framleiðenda. Þeir gætu þá búið til sín eigin tæki, svipað og þegar tölvur koma frá mismunandi framleiðendum.
Það varð til þess að Jason Ronald hjá Xbox steig fram og skýrði málið. Hann sagði skýrt að Project Helix verði hefðbundin Xbox-leikjatölva frá Microsoft sjálfu. Þar með var sá orðrómur sleginn út af borðinu.
Hins vegar svaraði hann ekki annarri spurningu sem margir velta fyrir sér. Það er hvort tæknin í vélinni gæti líka verið notuð af öðrum framleiðendum, til dæmis ASUS eða MSI, til að búa til sín eigin leikjatæki.
Prominent leaker KeplerL2 has dropped an eye brow raiser.
In a response to someone asking about the #Xbox Helix next-gen console/PC chip, he says;
„It won’t be sold directly to consumers, but you will be able to buy an ASUS/MSI/etc Helix machine.“
Whether he means there will… pic.twitter.com/r18XwXUQRf
— NIB (@nib95_) April 21, 2026
Þessi óvissa tengist því að Xbox hefur verið að breytast á síðustu árum. Fyrirtækið hefur lagt meiri áherslu á að fólk geti spilað leikina sína á fleiri en einum stað, ekki bara á leikjatölvu. Til dæmis hefur verið talað um að næsta Xbox muni einnig geta keyrt tölvuleiki sem eru venjulega spilaðir á PC.
Á sama tíma hafa verið breytingar í stjórnendateyminu, þar sem Phil Spencer og Sarah Bond hafa látið af störfum í lykilhlutverkum.
Í stuttu máli. Næsta Xbox er á leiðinni og verður framleidd af Microsoft. En nákvæmlega hvernig hún mun líta út og hvað hún mun geta, er enn ekki alveg komið á hreint.



