Sunnudaginn 24. ágúst verður haldið sérstakt minningamót í Rocket League þar sem íslenska samfélagið kemur saman til að heiðra minningu Árna Fannars Aðalsteinssonar, betur þekktur sem Arconix96, sem lést langt um aldur fram.
Í mótinu verður blandað saman liðum og keppt í vinalegu en jafnframt samkeppnishæfu umhverfi þar sem markmiðið er fyrst og fremst að minnast vinar sem hafði djúp áhrif á Rocket League samfélagið á Íslandi.
Bein útsending verður frá mótinu á Twitch-rás RLÍS og hefst hún klukkan 17:00. Þar geta áhorfendur fylgst með leikjunum, andrúmsloftinu og þeirri stemningu sem skapast þegar gamlir félagar og nýir sameinast í leiknum sem Árni Fannar hafði svo mikinn áhuga á.
Skipuleggjendur hvetja sem flesta til að taka þátt, hvort sem er sem leikmenn eða áhorfendur, og þannig sýna samstöðu og virðingu í verki. Skráning fer fram í gegnum QR-kóða sem jafnframt leiðir beint á streymið.
„Allir að mæta og kæta,“ segja skipuleggjendur sem leggja áherslu á að kvöldið verði bæði minningarstund og hátíð sameiningar.
Mynd: aðsend




