Næsta kynslóð Xbox verður „Lúxus og háklassa upplifun“ að sögn Sarah Bond, forseta Xbox, sem ræddi framtíð leikjatölvunnar í viðtali á YouTube-rás Mashable.
Sarah lýsti nýju leikjatölvunni sem vandlega mótaðri upplifun í hæsta gæðaflokki og gaf í skyn að Microsoft sé að þróa tæki sem brúar bilið milli hefðbundinnar leikjatölvu og öflugrar leikjavélar á borð við háklassa PC.
„Þú hefur rétt fyrir þér að næsta kynslóð Xbox verður mjög lúxus, mjög háklassa og vandlega hönnuð upplifun,“
sagði Sarah.
„Þú sérð þegar ákveðna hugsun hjá okkur í [ASUS ROG Xbox Ally] handtölvunni, en ég vil ekki gefa of mikið upp strax.“

Ummælin styrkja þær sögusagnir að Microsoft hyggist færa Xbox nær PC-heiminum með sveigjanlegri vélbúnaði og afli sem gæti umbreytt hefðbundinni hugmynd um leikjatölvu.
Sarah ræddi jafnframt hvernig hugmyndin um einkarétt í leikjum sé að taka breytingum.
„Við sjáum greinilega að spilarar hafa vaxið upp úr þeirri hugsun,“
sagði hún.
„Stærstu leikir heims eru í dag fáanlegir á öllum helstu kerfum. Call of Duty, Minecraft, Fortnite og Roblox eru dæmi um titla sem skapa raunverulegt samfélag.“
Að hennar mati snýst framtíð leikjaiðnaðarins um tengsl og aðgengi, ekki aðgreiningu.
„Hugmyndin um að læsa leik við eina verslun eða eina vél er orðin úrelt. Fólk vill geta spilað með vinum sínum, sama hvaða tæki það notar.
Við leggjum mikla áherslu á þetta í næstu kynslóð Xbox, því það opnar nýja og betri leið til að upplifa leikina.“
Stefna Microsoft í endurmótun
Orð Sarah endurspegla þá stefnu sem Microsoft hefur tekið undir stjórn Satya Nadella, þar sem áherslan hefur færst frá hefðbundnum hugbúnaðar- og vélasölum yfir í vistkerfi þjónustu og aðgengis. Fyrirtækið hefur undanfarið verið gagnrýnt fyrir þrýsting um aukinn hagnað innan Xbox-deildarinnar, sem meðal annars hefur leitt til uppsagna og fækkunar verkefna.
Þrátt fyrir það virðist nýr kafli vera að hefjast þar sem Microsoft leggur áherslu á samspil milli kerfa, samnýtingu leikja og dýpri samþættingu við PC-hefðina. Næsta kynslóð Xbox gæti því orðið ekki aðeins ný vél, heldur tákn um breytta framtíðarsýn, þar sem frelsi spilarans og samfélagið sjálft eru í forgrunni.
Myndir: skjáskot úr myndbandi





