Íslandsmeistaramótinu í PUBG: Battlegrounds lauk um helgina eftir harða og spennandi keppni þar sem bestu lið landsins börðust um titilinn.
Mótið markaði lokahnykk deildarkeppni GameTíví sem fór fram í vetur, en 16 efstu lið deildarinnar tryggðu sér sæti á Íslandsmeistaramótinu.
Úrslitin í mótinu réðust um helgina eftir keppni sem staðið hafði yfir tvær síðastliðnar helgar. Alls voru spilaðir sex leikir nú um helgina í FPP-formati og var keppt á kortunum Miramar, sem var spilað tvisvar, Taego, Rondo og Erangel sem einnig var spilað tvisvar.
Omni tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn
Mikil spenna ríkti allt fram á lokamínútur mótsins þar sem liðin börðust af krafti um Íslandsmeistaratitilinn.
Að lokum stóð liðið Omni uppi sem Íslandsmeistari í PUBG: Battlegrounds. Fresh hafnaði í öðru sæti og PNGR tryggði sér þriðja sætið.
Glæsileg verðlaun fyrir efstu sætin
Verðlaunin voru vegleg og fengu leikmenn verðlaun eftir lokastöðu liða sinna. Sigurvegararnir í Omni fengu meðal annars PlayStation 5 Digital Edition leikjatölvu, PlayStation hleðsludokku og PlayStation DualSense stýripinna.
Liðið í öðru sæti fékk meðal annars Revolution Pro stýripinna, nuddbysu frá Sharper Image og 10 þúsund króna inneign hjá Dominos. Þriðja sætið fékk einnig 10 þúsund króna inneign hjá Dominos og fjórða sætið hlaut 5 þúsund króna inneign.
Hægt er að horfa á úrslitaleikinn aftur
Streymt var beint frá öllum leikjum vetrarins á GameTíví þar sem Steypa og Snapster sáu um lýsingar, en Icenosi var observer mótsins.
Úrslitaleikinn má horfa á hér að neðan.
Heildarstaðan eftir úrslitin
Myndir: Skjáskot úr beinni útsendingu









