Close Menu
    Nýjar fréttir

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Skjálfti snýr aftur í Digranes: Stórt LAN mót í september
    Skjálfti - Logo
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Skjálfti snýr aftur í Digranes: Stórt LAN mót í september

    Chef-Jack14.08.2025Uppfært22.09.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Skjálfti - Logo

    Fjölmörg ár eru liðin frá því Skjálfti var síðast haldinn, en í haust verður mótið endurvakið. Rafíþróttasamband Íslands hefur undanfarin misseri fengið fjölmargar ábendingar frá áhugafólki sem saknar opinna LAN móta í anda þeirra sem Skjálfti var þekktur fyrir.

    „Rafíþróttir eru orðnar mun stærri grein en þegar Skjálftamótin voru hvað vinsælust, en í dag spilar fólk þó að mestu heima. Nú viljum við bjóða aftur upp á þann anda sem mótin höfðu,“

    segir Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, í samtali við esports.is.

    Að mótinu standa öflugir samstarfsaðilar, þar á meðal Ljósleiðarinn, Sím­inn, Red Bull og Ofar, sem styðja við framkvæmdina. Á dagskránni verður bæði fjölbreytt úrval móta og opið lansvæði þar sem gestir geta notið andrúmsloftsins og spilað saman á staðnum.

    Skráning hefst í næstu viku, en Skjálfti fer fram í Digranesi dagana 26.–28. september. Skipuleggjendur segjast hlakka sérstaklega til að taka á móti keppendum og gestum á ný í þessu sögufræga LAN umhverfi.

    Skráning fer fram hér.

    Um Skjálfta

    Fréttaritari esports.is hefur sjálfur upplifað mörg Skjálfta-LAN mót. Skjálfti var rótgróin mótaröð LAN-leikjamóta á Íslandi sem naut mikilla vinsælda frá lokum tíunda áratugarins og fram til ársins 2006.

    Skjálfti hófst innan vébanda Símans Internet (áður Landssíminn) haustið 1998. Upphaflega var Skjálfti nafnið á leikjaþjóni Símans, skjalfti.simnet.is, sem fór í loftið 9. október 1998. Á árunum 2003–2005 náði Skjálfti hápunkti hvað umfang og vinsældir varðar. Mótin voru haldin að jafnaði fjórum sinnum á ári (yfirleitt um febrúar, vor, sumar og haust) og hvert mót laðaði að sér hundruð keppenda og gesta.

    Skjálfti
    Upphaflega var heimasíða Skjálfta á Hugi.is, en færðist síðar yfir á lénið skjalfti.is, sem nú tilheyrir Símanum hf. Hér að ofan má sjá skjáskot af vefnum skjalfti.is eins og hann birtist á sínum tíma.

    Áhrif Skjálfta á íslenskt tölvuleikjasamfélag eru óumdeilanleg. Mótaröðin skapaði heila kynslóð af metnaðarfullum leikmönnum, ruddi brautina fyrir viðurkenningu á rafíþróttum sem alvöru keppni og byggði upp innviði (t.d. leikjaþjóna og mótsfyrirkomulag) sem aðrir gátu síðar tekið við.

    Hér að neðan má sjá Instagram-mynd frá CS Nostalgían, tekin á Skjálfta 3 árið 2003. Mótið fór fram helgina 22. – 24. ágúst í íþróttahúsi HK í Digranesi. Ef myndin birtist ekki mælum við með að endurhlaða síðuna.

     

     

    View this post on Instagram

     

    A post shared by CS Nostalgían (@cs_nostalgian)

    Logo Skjálfti: web.archive.org

    CS Nostalgían Jökull „Kaldi“ Jóhannsson Mót framundan Rafíþróttasamband Íslands Skjálfti
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi
      Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár
      14.06.2026
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Rafíþróttasamband Íslands - RÍSÍ - Logo
      Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli
      16.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.